153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Herra forseti. Síðast í þessum dagskrárlið sá hv. þm. Björn Leví Gunnarsson ástæðu til að halda ræðu sína um mig. Ástæðan var heldur furðuleg, þar sem hann fann að því að ég hefði í vor sagst treysta Ríkisendurskoðun en segi nú, eftir að umfangsmiklar athugasemdir Bankasýslunnar komu fram, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd verði að taka mið af þeim nýju upplýsingum við vinnslu málsins hér eftir.

Það á varla að vekja mikla furðu hv. þingmanns að þótt eitthvað njóti trausts sé það ekki alltaf hafið yfir allan vafa. Það væri, herra forseti, enda þvert á hlutverk mitt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að rýna ekki í hverja einustu athugasemd við vinnslu þessa máls. Hv. þingmaður var reyndar alls ekki hættur að leggjast út í furðuleg ræðuhöld því nokkrum mínútum síðar bætti hann um betur og ákvað að mæta í þessa háttvirtu pontu til að saka mig svo gott sem um að hafa lekið skýrslunni. Eða hvað annað er hægt að kalla það þegar sagt er orðrétt, með leyfi forseta:

„Að mínu mati, ef talað er um dylgjur, þá eru einu dylgjurnar hérna sem vert er að nefna þær að það hafi verið þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem láku skýrslunni.“

Hv. þingmaður bætir reyndar við að hann sé reyndar ekkert að nota slíkar dylgjur. En forseti, sem ein örfárra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hafði aðgang að skýrslunni þegar henni er lekið verð ég að fá að segja að það er augljóst hverju hv. þingmaður er að ýja að og ég hafna því harðlega. Hv. þingmaður væri maður að meiri ef hann bæðist afsökunar á þessum orðum sínum. Þau eru líka þinginu til minnkunar og ég myndi aldrei standa hér í þessari mikilvægu pontu og fabúlera um hver mér þyki líklegastur til að hafa lekið þessari skýrslu, enda hef ég engar forsendur til þess aðrar en að vita að ég gerði það ekki sjálf.

Forseti. Mér sýnist svona umræða (Forseti hringir.) vera einhvers konar nýtt stig taugaveiklunar yfir málefnaþurrð og vonbrigði þeirra leyna sér ekki sem vonuðu að skýrslan myndi vera meira í stíl við gífuryrðin sem voru látin falla hér í vor.