153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Í þessum ræðustól viljum við oft ræða um málefni eins og samgöngur út frá málefnum atvinnulífsins, byggðanna og öðru slíku. En nú ætla ég að ræða um samgöngumál út frá málefnum barna. Við, talsmenn barna, undirrituðum í dag yfirlýsingu um að tala um það. Þá vildi ég benda á vissan þátt í samgöngunum, en það er að tíðni samgangna og greiðar samgöngur skipta gríðarlega miklu máli. Núna heyrum við að samfélögin kalla eftir því að þær samgöngur sem þau þó hafa virki og séu greiðar, eins og í Vestmannaeyjum þar sem Herjólfur er ítrekað bilaður og þarf að sigla til Þorlákshafnar og ekkert flug er til að bregðast við. Við heyrum af því að bjóða á aftur út siglingar ferjunnar með samdrætti á ferðum, og við höfum heyrt vandamálin varðandi Baldur sem vonandi er að finnast lausn á.

Af hverju nefni ég þetta út frá börnum? Af því að ef þessar samgöngur eru ekki nógu greiðar, tíðar og öruggar þá hefur það áhrif á börn sem sækja félagslíf og íþróttastarf, þurfa að fara til læknis og sinna sínum þörfum, jafnvel að fara til náms eins og frá Hrísey. Því skiptir tíðni ferða miklu máli. Það gerðist nú síðast þegar Herjólfur bilaði um helgina að þar var stór hópur barna, sem þurfti að fara upp á land til að keppa í íþróttum, fastur á ferjunni langan tíma. Við þurfum að tryggja greiðar flug- og ferjusamgöngur til að samfélögin og mikilvæg þjónusta gangi.