153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Það er með ólíkindum að fylgjast með þeirri aðferðafræði sem viðhöfð er um þessar mundir hvað varðar orkuöflun. Mig setur hljóða þegar ég fylgist með umræðunni, þegar ég fylgist með því hversu harkalega og ákveðið er unnið að því víða um land að koma upp vindorkuverum í ýmsum myndum. Það kemur fram í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar að setja eigi lög um vindorkugarða. Við sem þjóð höfum brennt okkur á því að ætla að gleypa allan heiminn í einu og gera það hratt og fara þannig af stað að eftir á, þegar í ljós kemur hversu illa var að verki staðið, þá stöndum við eftir ráðalaus og getum einhvern veginn ekki bætt úr því. Það sem um er að ræða er viðkvæm íslensk náttúra sem er eitt af þeim atriðum sem standa hvað mest undir efnahag samfélagsins. Við erum á rosalega sérstakri leið. Ég spyr mig, þegar farið verður í vinnuna og þegar regluverkið er tilbúið, hvað ef þær áætlanir og þau áform sem eru langt komin víða um land standast ekki? Hvað á þá að gera? Eða getur verið að það sé kannski bara verið að smíða regluverkið í kringum það sem er að gerast?