153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Þeim er hér stendur varð það á í ræðu sinni sl. þriðjudag að eigna hæstv. forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, allt frumkvæði að stofnun framtíðarnefndar. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson benti á það í ræðu sinni skömmu síðar að í raun hefðu Píratar barist fyrir því að komið yrði á fót slíkri nefnd árið 2017. Síðar sama dag var bent á það á samfélagsmiðlum að Steingrímur sálugi Hermannsson hefði í forsætisráðherratíð sinni í tvígang komið á fót framtíðarnefnd og staðfestu ungir Framsóknar- og framtíðarmenn það á þinginu hér með skjáskoti skömmu síðar.

Sú var tíðin að ég átti sem formaður STEF í viðvarandi átökum og opinberu orðaskaki við Pírata vegna höfundaréttarmála, en stefna flokksins, sem þá var nýstofnaður, byggði í þeim efnum á stefnu sænskra Pírata sem þrengja vildu verulega að þeim stjórnarskrárvarða eignarrétti sem höfundaréttur er. Ég kunni einkar vel að meta heiðarleika Helga Hrafns Gunnarssonar, málsvara Pírata í þessum málum á þeim tíma, er hann að lokum viðurkenndi að hugsanlega þyrfti flokkurinn að endurmeta stefnu sína í þessum málaflokki sem hann og gerði.

Án einbeitts vilja hæstv. forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, hefði framtíðarnefnd að líkindum ekki orðið að því áhersluatriði hér sem raun ber vitni í dag. Mér er hins vegar bæði ljúft og skylt að biðjast forláts á því að geta hvorki þáttar Pírata né Framsóknar í þessu samhengi og vil fagna því alveg sérstaklega að Píratar láti sig nú höfundarétt hugmynda varða með öðrum hætti en var.

Ég vil líka geta þess, sem ég nú veit, að meðal helstu frumkvæðismanna Pírata í þessum efnum voru Smári McCarthy, síðar framtíðarnefndarformaður, sem sjálfur skrifaði að stærstum hluta mikla og vandaða skýrslu um störf síðustu framtíðarnefndar, og þá ekki síður hv. þm. Halldóra Mogensen, sem situr í framtíðarnefnd í dag ásamt þeim sem hér stendur og fleirum.

Megi framtíðarnefnd Alþingis vel farnast í störfum sínum, m.a. við greiningu helstu styrkleika, veikleika, ógnana en þó fyrst og fremst tækifæra sem við okkur blasa er leiða megi til bestunar allra helstu lykilþátta í framtíðarlandinu Íslandi.