153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[14:07]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Vegna þess að hér í umræðum um störf þingsins kallaði hv. þm. Hildur Sverrisdóttir eftir viðbrögðum hv. þm. Björns Leví Gunnarssonar þá reikna ég með því að forseti taki það upp á tilhlýðilegum vettvangi að minna þingmanninn á þá sjálfsögðu kurteisi að láta fólk vita þegar er ætlast til að við eigum orðastað hvert við annað hér í þessari pontu. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir vék að því að ýjað hefði verið að því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefðu lekið skýrslu Ríkisendurskoðunar áður en hún birtist opinberlega. Þá er rétt að halda því til haga, forseti, að það voru þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem byrjuðu dylgjuleikinn. Það voru tveir varaþingmenn Sjálfstæðisflokksins sem fóru hér upp í pontu og ýjuðu ekkert að því, sögðu bara hreinlega að það hefðu verið nefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem hefðu lekið skýrslunni, eða eins og annar (Forseti hringir.) gárunginn sagði: Þessi þingmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem var skjótari en skugginn (Forseti hringir.) að skjóta skýrslunni til fjölmiðla. Það liggja nú bara níu manns undir grun, það eru ekki fleiri þingmenn en það, og ef einhver (Forseti hringir.) ætti að biðjast afsökunar þá eru það þessir þingmenn Sjálfstæðisflokksins.