breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Ég rak augun í eitt í kafla 3.14, Ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt. Þar er talað um ívilnun sem gildir út árið 2023 eða þar til 20.000 bifreiða fjöldamörkum er náð. Þetta eru vetnisbifreiðar og það á að afnema þessa fjöldatakmörkun varðandi 20.000 bifreiðar, sem er gott, og stjórnvöld eru með til skoðunar hvernig stuðningi þeirra verði háttað á næstu misserum vegna orkuskipta í samgöngum í landinu. Skoðunin beinist m.a. að því hvernig stuðningi skuli fram haldið vegna kaupa einstaklinga á hreinorkubifreiðum og hvernig hvetja skuli bílaleigur í orkuskiptunum. Svo segir, varðandi breytingu á lögum nr. 33/2022, að á næsta ári verði tollyfirvöldum við tollafgreiðslu rafmagns- og vetnisbíla heimilt að fella niður virðisaukaskatt að hámarki 1.320.000 kr. að uppfylltum öðrum skilyrðum. Þá er seljendum rafmagns- og vetnisbifreiða heimilt að undanþiggja við sölu þeirra að hámarki 5,5 milljónir frá skattskyldri veltu sinni að uppfylltum öðrum skilyrðum ákvæðisins.
Varðandi þetta með tollafgreiðsluna þá finnst mér ansi lágt að það sé einungis heimilt að fella niður virðisaukaskatt að hámarki rúmar 1,3 milljónir. Nú eru þessar bifreiðar miklu dýrari en 5,5 milljónir og dýrari en svo að virðisaukaskatturinn sé að hámarki 1,3 milljónir. Er verið að ganga nógu langt? Við hvað miðast þessi tala, 1.320.000? Hvaða verð er á bílunum? Er ekki áfram verið að taka toll af þessum bifreiðum? Er verið að ganga nógu langt í þessu máli til að fá orkuskipti í bílaflotanum?