153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

432. mál
[15:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er alltaf matsatriði. Við höfum séð mjög mikinn innflutning á rafmagnsbifreiðum og það sem við erum að boða núna er að hefja lágmarksvörugjaldstöku frá áramótum. Í dag er það þannig að þessir bílar, rafmagnsbifreiðarnar, njóta hvort tveggja niðurfellingar á vörugjöldum að fullu og svo fá menn endurgreiddan virðisaukaskattinn með þeim takmörkunum sem hafa komið fram hér. Því myndi ég segja, ef menn hafa einhverjar áhyggjur af því að draga muni úr hvötum til að flytja inn þessa bíla, að hvatarnir séu miklir nú þegar. Það munar gríðarlega miklu á aðflutningsgjöldum, svo ekki sé minnst á rekstrarkostnaðinn yfir árið. Við erum að vísa til þess að nú þurfi að fara fram heildarendurskoðun á þessu gjaldakerfi. Við erum ekki tilbúin með svar við spurningunni um það hvernig aðflutningsgjöldin verða nákvæmlega þegar nýtt kerfi hefur verið tekið upp. Ég sé þetta þannig fyrir mér að við verðum fyrst og fremst að byggja á kílómetragjaldi, ekki bara umhverfisvænna bíla heldur allra bíla. Þannig fara umhverfisvænir bílar að taka þátt í gjaldakerfi í fyrsta skipti vegna notkunar á vegakerfinu. Síðan er spurning með hvaða hætti við þurfum áfram að hafa ívilnanir til þess að það sé hagkvæmt að kaupa umhverfisvæna bíla umfram hina, en við þurfum að treysta á að framleiðslukostnaður umhverfisvænna bíla haldi áfram að lækka eins og verið hefur.