153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

432. mál
[15:31]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið. Varðandi að hafa það að hámarki 1.320.000 kr. og líka að seljendum rafmagnsbíla og vetnisbifreiða sé heimilt að undanþiggja við söluna að hámarki 5,5 millj. kr. frá skattskyldri veltu sinni að uppfylltum ákveðnum skilyrðum — ég horfi á þetta þannig og ég les stjórnarsáttmálann: Ég held að við höfum fjórum sinnum sagt að við ætlum að vera best í heimi eða til fyrirmyndar á alþjóðavísu og fremst í flokki í baráttu gegn loftslagsbreytingum og líka í orkuskiptum. Ég sé þetta þannig, þ.e. að verið sé að takmarka þessar fjárhæðir við 1,3 milljónir í virðisaukaskattinum varðandi toll rafmagns- og vetnisbifreiða, að skattmann, fjármálaráðherra, vilji ekki missa takið af þessum innflutningi, hann vill enn þá hafa tekjur af þessu. Það kemur líka fram í fjárlagafrumvarpinu að tekjur af innflutningi rafbíla eigi að vera 5 milljarðar, ef ég man rétt. Ég lít á það þannig að þegar orkuskiptin eiga sér stað þá mun það kosta ríkissjóð ákveðið, af því að við ætlum að hraða þeim mikið, en síðan þegar orkuskiptin eru komin í bílaflotann þá tökum við upp kílómetragjaldið. (IngS: Þá tökum við upp sleggjuna.) Já, þá förum við að taka gjald af bifreiðum, þegar allir aka hér um á rafbílum þá tökum við kílómetragjaldið. En þessi orkuskipti, öll gjaldtaka af orkuskiptunum mun tefja orkuskiptin. Mér finnst við vera eftirbátar annarra þjóða, t.d. Noregs sem er þriðji stærsti markaður fyrir Teslur, 5,2 milljóna samfélag. Við ætlum að vera fremst í heimi en samt ætlum við ekki að gera það þegar kemur að kostnaði. Það er þessi kostnaður sem fer svolítið í taugarnar á mér, að við séum enn þá að innheimta skatt af innflutningi á rafbílum í miðjum orkuskiptum. Hvaða tekjur mun ríkissjóður hafa af orkuskiptum á rafmagnsbifreiðum? (Forseti hringir.) Er búið að reikna það út? Fimm milljarða í fjárlagafrumvarpi næsta árs? Hvaða tekjur mun ríkissjóður hafa af þessum hámörkum hérna?