sértryggð skuldabréf og fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sértryggð skuldabréf og lögum um fjármálafyrirtæki. Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni tveggja Evrópugerða um sértryggð skuldabréf, þ.e. tilskipunar ESB 2019/2162, um útgáfu sértryggðra skuldabréfa og opinbert eftirlit með sértryggðum skuldabréfum, og reglugerðar ESB 2019/2160, um breytingu á reglugerð ESB nr. 575/2013, að því er varðar áhættuskuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa.
Sértryggð skuldabréf eru sérstök tegund skuldabréfa sem lánastofnanir gefa út til að fjármagna útlán og aðra starfsemi sína. Helsta einkenni þeirra er að þau eru ekki tryggð með hefðbundnum veðum heldur með tryggingasöfnum traustra eigna, sem eru yfirleitt einkum fasteignalán. Greiðslur af eignum í tryggingasöfnum eiga að nægja til að standa undir greiðslum af skuldabréfunum. Verði útgefandi sértryggðra skuldabréfa gjaldþrota eiga eigendur bréfanna forgangsrétt umfram aðra kröfuhafa að eignum í tryggingasafni, auk almennrar kröfu á útgefanda. Af þessum sökum eru sértryggð skuldabréf talin mjög öruggur fjárfestingarkostur, sem um leið gerir þau að hagkvæmri fjármögnunarleið fyrir lánastofnanir.
Ákvæðum Evrópugerðanna svipar mjög til þess lagaramma sem þegar gildir um sértryggð skuldabréf hér á landi og innleiðing þeirra kallar því ekki á verulegar breytingar á gildandi lögum. Veigamestu breytingarnar eru líklega þær að útgefendur þurfa ávallt að hafa nægt laust fé í tryggingasöfnum til að standa undir hámarksútflæði lauss fjár næstu 180 daga, sett eru skilyrði fyrir frestun gjalddaga sértryggðra skuldabréfa og mælt er fyrir um ítarlegri upplýsingagjöf útgefenda til fjárfesta. Þá munu fleiri brot en áður varða stjórnvaldssektum og hámark sektanna verður hækkað. Skuldabréf sem uppfylla skilyrði laganna verður unnt að markaðssetja sem svokölluð „evrópsk sértryggð skuldabréf“ eða „evrópsk sértryggð skuldabréf (úrvals)“.
Innleiðingin er ekki talin hafa veruleg áhrif hér á landi. Hún mun þó greiða fyrir útgáfu og viðskiptum íslenskra lánastofnana með sértryggð skuldabréf þvert á landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins og gæti lækkað lítillega fjármögnunarkostnað þeirra. Þá samræmist hún skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Mig langar aðeins til að benda á að það mætti kannski kveða aðeins sterkar að orði og segja að það séu ágætislíkur á því að þessi innleiðing geti lækkað fjármögnunarkostnað íslenskra lánastofnana en sá fjármögnunarkostnaður hefur verið að aukast. Skilyrðin hafa versnað töluvert á tiltölulega skömmum tíma sem leiðir til þess að þetta getur skipt töluvert miklu máli fyrir lánastofnanir á þeim tímum sem við lifum nú og í því umhverfi sem hefur skapast á fjármálamörkuðum. Að því leytinu til myndi ég hvetja til þess að efnahags- og viðskiptanefnd, sem fær málið til meðhöndlunar, myndi reyna að tryggja framgang málsins á sem skemmstum tíma.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að reglugerð ESB 2021/424, um breytingu á reglugerð ESB nr. 575/2013, að því er varðar óhefðbundna staðalaðferð vegna markaðsáhættu, verði veitt lagagildi. Innleiðing hennar hefur ekki áhrif sem stendur þar sem engin íslensk lánastofnun notast við óhefðbundna staðalaðferð við mat á markaðsáhættu, en þetta samræmist hins vegar skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.