Sundabraut.
Forseti. Ég velti því fyrir mér af hverju það er endilega takmarkað í ályktuninni sjálfri nákvæmlega hvar og nákvæmlega hvernig, þ.e. brú milli Kleppsvíkur og Gufuness, þar sem aðrir valmöguleikar eru í boði, sérstaklega vegna þess að íbúar á svæðinu hafa mjög miklar áhyggjur af því hvernig umferð myndi þróast ef brúin kæmi akkúrat þarna upp, hvort sem það yrði brú eða göng, þar sem umferð myndi dreifast í sitt hvora áttina, í áttina að Reykjanesbraut eða Sæbraut inn í miðbæinn. Miðað við ástandið eins og það er núna, bara núna, þá væri það mjög óþægilegt, ef ég orða það þannig.
Brúin er líka í stærðarsamhenginu sem hv. þingmaður vísar þarna í ekkert það mikið ódýrari en göngin og það er tekið sérstaklega fram í greinargerðinni að ríkisfjármálin geti ekki réttlætt töf á verkefninu. Ég get tekið undir það en ég sé ekki endilega að það séu rök fyrir því að við þurfum þá nauðsynlega að fara í brúna þegar göngin bjóða upp á miklu fjölbreyttari valmöguleika um það hvar Sundabrautin myndi koma upp á skaganum, Reykjavíkurskaganum, þ.e. frekar nær miðbænum t.d. sem myndi alla vega vera mun auðveldara fyrir umferðarstýringu fram hjá þrengslunum sem eru við gatnamótin við Miklubraut, Sæbraut og Reykjanesbraut, göngin eru tiltölulega nálægt þeim stað ef þau kæmu upp hjá Kleppsvík þar sem er nú bara hnútur sem myndi jafnvel verða verri með þessu fyrirkomulagi.