Sundabraut.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það er rétt að í tillögunni er talað um gerð Sundabrautar með brú milli Kleppsvíkur og Gufuness. Hann segir að það muni ekki svo miklu varðandi fjárhæðina, en samkvæmt greinargerð starfshópsins sem skilaði greinargerð í janúar í fyrra, fyrir nánast tveimur árum, er áætlað að brú sé 14 milljörðum krónum ódýrari framkvæmd en Sundagöng. Og einnig kemur fram, sem er mjög mikilvægt, að umferð verði 20% minni um Sundagöng en Sundabrú. Þannig að þetta er tvennt, við erum annars vegar að tala um verðið og hins vegar nýtinguna. Ég tel að það sýni án nokkurs vafa að það sé Sundabraut sem valin verður. Ef Reykjavíkurborg vill eingöngu Sundabraut, eins og þeir gerðu 2008, lýstu því yfir við samgöngunefnd þingsins, og ríkisstjórnin líka, að þeir legðu áherslu á Sundagöng, þá tel ég eðlilegt að Reykjavíkurborg greiði muninn, mér finnst það bara sjálfsagt mál. En varðandi hvar nákvæmlega brúin myndi koma upp þá tel ég að það sé nánast tæknilegt atriði, en að sjálfsögðu þarf að hanna hana þannig að hún valdi sem minnstu ónæði, þ.e. umferð af Sundabrú og vegurinn sem verður lagður áfram upp á Kjalarnes, og valdi sem minnstu ónæði fyrir íbúðabyggð vestast í Grafarvoginum. Það er grundvallaratriði. En ég get ekki séð það að Sundagöng réttlæti það, þessir 14 milljarðar eru mjög mikill peningur. Reykjavíkurborg er rekin núna með 15 milljarða kr. halla og það er greinilega einhver strúktúrvandi þar í fjármögnun og útgjöldum. En ég tel að notagildið og líka fjárhæðin fjalli um Sundagöng. Hvar þetta verður nákvæmlega er tæknileg útfærsla.