153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Sundabraut.

60. mál
[16:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður talaði um að Alþingi ætti bara að beita lagasetningu til að koma í veg fyrir allar tafir. Þetta fer dálítið í mig, þetta hljómar dálítið eins og tuddaskapur Alþingis, ég verð að viðurkenna það. Það eru settar ýmsar vörður, eins og hv. þingmaður nefndi, á umhverfismat og slíkt, sem er nauðsynlegt. Það er nauðsynlegt að gera svoleiðis hluti vel. Að velja bara einhverjar framkvæmdir til að fara fram hjá einhverju með sérstakri lagasetningu eru ekkert rosalega góð vinnubrögð. Brú getur mjög illa farið mikið vestar. Þá erum við komin fram yfir hafnarsvæðið í rauninni og það er bara ekki alveg pláss nema kannski ef við förum með brú yfir í Viðey eða eitthvað því um líkt, eða ég myndi vænta þess að brúin færi alltaf alla vega norðar og vestar en hafnarsvæðið sjálft. Þá erum við komin á mjög skringilegan stað fyrir brú alla vega. Og þetta með að Reykjavík eigi endilega að borga mismuninn, ég kaupi þau rök ekki alveg. Þá gætum við t.d. farið að tala um sömu rök fyrir öllum göngum alls staðar annars staðar á landinu, að alltaf þegar talað er um að byggja göng frekar en að nota fjallvegina eða eitthvað því um líkt, þá eigi sveitarfélögin þar að borga mismuninn á því. Við erum að tala um þetta í stærra samhengi. Við þurfum að horfa á höfuðborgarsvæðið til ákveðinnar framtíðar, til þess að það búi einn daginn 500.000 manns, jafnvel milljón, hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er sá tími sem við þurfum að horfa til sem þessi braut á að duga, hún á að duga sem samgönguframkvæmd fyrir 500.000 manna höfuðborgarsvæði og þá þarf að hugsa um hvernig höfuðborgarsvæðið lítur út með þeim fjölda og geta skipulagt svona stóra framkvæmd með tilliti til þess. Þá held ég að göngin og staðsetning vestar væri mun gáfulegri kostur.