Sundabraut.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir seinna andsvar sitt. Virðulegur þingmaður horfir greinilega mjög langt til framtíðar, vissulega getur vel verið að við verðum orðin hálf milljón fljótlega hérna á höfuðborgarsvæðinu eða það kæmi mér ekki á óvart, þó kannski eftir okkar dag. En það breytir því ekki að málið er þetta: Við erum ekki enn þá komin með Sundabrú eða Sundabraut þrátt fyrir að tillaga um það hafi fyrst komið fram fyrir 47 árum síðan. Sama má segja um Skerjafjarðarbrú. Í hvert skipti sem ég keyri Suðurgötuna til suðurs skil ég ekki af hverju ekki er löngu búið að gera Skerjafjarðarbrú. Það er ekkert mál að gera þessa brú, skerin eru beint þarna fyrir utan. Það er einhver djúp ræma sunnan megin við skerin. En það er ekki búið. Ég heyrði þá sögu að það væri vegna andstöðu íbúa í Skerjafirðinum, efnafólksins sem býr í villunum þar. Þeir vildu ekki fá veg þarna hjá sér. Það er búið að stoppa það.
Varðandi skipulagslögin og lög um mat á umhverfisáhrifum þá eru þau lög, sérstaklega skipulagslögin, til að tryggja lýðræðislega þátttöku íbúanna í skipulagi sinnar byggðar. Það eru ákveðnir málsmeðferðarfrestir, þeir taka þátt í ákveðinni ákvarðanatöku. Það er andmælaréttur og þeir geta komið sínum sjónarmiðum að. Sama er um mat á umhverfisáhrifum. Ég tel, varðandi mat á umhverfisáhrifum af svona framkvæmd, að þetta sé í sjálfu sér ekki — jú, jú, það þarf líka að fara í ákveðið félagslegt mat og annað slíkt, en mat á umhverfisáhrifum, eins og ég var að skoða aðeins á ákveðnum vegum, þ.e. Þröskuldum og öðrum stöðum, það er verið að telja gæsir og annað slíkt — þetta á ekkert að vera of flókið mat. Það er líka til að tryggja lýðræðislega aðkomu.
En málið er líka þetta: Við hér á Alþingi erum líka lýðræðislega kjörnir. Það er ekki bara mál höfuðborgarbúa að það sé engin Sundabraut, eins og kom fram í ræðu minni áðan og kemur fram í greinargerð, þetta er líka mál íbúa Vesturlands, íbúa Akraness, íbúa Vestfjarða og Norðurlands vestra. Það er líka rétt að lýðræðislega kjörnir fulltrúar geti komið að því máli á Alþingi, alveg eins og varðandi mál sem laut að Reykjavíkurflugvelli. Þar var frumvarp sem laut að því að ríkisvaldið færi með skipulagsmál á Reykjavíkurflugvelli. Ég tel þetta mál vera miklu betur til þess fallið að Alþingi taki það til sín ef Reykjavíkurborg stoppar það. Reykjavíkurborg hefur enga heimild til að stoppa þessa framkvæmd.