153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Sundabraut.

60. mál
[16:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég tel þetta að mestu leyti vera alveg prýðisgóða tillögu, ég er fylgjandi Sundabraut, ákveðinni hringtengingu á höfuðborgarsvæðinu í stað þessarar línulegu tengingar sem við erum með núna, þar sem er ein lína sem þverar einhvern veginn borgina og sker hana svolítið í sundur. Hefðbundnari samgönguleiðir eru venjulega hringinn í kring um þéttbýlissvæði til að skera ekki í sundur byggðakjarna. Það er samt ýmislegt sem þarf að huga að í svona stórri framkvæmd. Hún er til að byrja með gerð til framtíðar. Hún er ekki gerð fyrir okkur í dag. Framkvæmdin á henni tekur það langan tíma að hún er tvímælalaust gerð fyrir höfuðborgarsvæðið eins og það mun líta út eftir tíu, tuttugu ár eða eitthvað því um líkt og það þarf að taka tillit til þess. En í kjölfarið skiptir frekari uppbygging líka máli af því að Sundabrautin ætti að anna álagi, skipulagslega séð, alla vega 100 ár fram í tímann. Það hefur áhrif á val á staðsetningu að mínu mati og hvernig við veljum hana. Ég held að við höfum oft ekki hugsað um þennan framtíðarþátt mála þegar við erum að huga að samgöngum á Íslandi, sem mér finnst dálítið leiðinlegt. Á Vestfjörðum t.d., þar sem er vegur um Ísafjarðardjúpið — eins góður og hann er, þá er hann tvímælalaust ekki góður fyrir alla Vestfirðina. Það hefði verið miklu hagkvæmara, vissulega aðeins dýrara til að byrja með, að fara suður með og upp eftir vestanverðum Vestfjörðum, klára þann veg fyrst. Hann hefði dugað fyrir miklu fleiri. Þó að framkvæmdin hefði tekið lengri tíma og hefði vissulega verið dýrari hefði hún, þegar á heildina er litið, skilað miklu betri árangri fyrir Vestfirði. Þá erum við að hugsa til lengri tíma, alltaf fyrst að hugsa þannig. Núna erum við í þeirri stöðu að það er verið að reyna að byggja upp þann veg með göngum og betri vegum þar í kring en það er nokkrum áratugum eftir að hinn vegurinn var byggður. Þetta hefur að mínu mati valdið mjög slæmum áhrifum á íbúaþróun á Vestfjörðum og atvinnuþróun á Vestfjörðum, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum. Með svona dýrar og stórar framkvæmdir þurfum við að horfa til mjög langs tíma. 14 milljarðar eru há upphæð en ég horfi þá til þess að til langs tíma minnkar sú upphæð mjög hratt, hún gerir það. Hér er talað um ábata upp á 185–236 milljarða eftir því hvað er verið að velja. Þegar við erum að tala um slíkan ábata, hvort sem er, þá eru 14 milljarðar mjög lítil upphæð í því stóra samhengi. (Gripið fram í.)

Smá meiri athugasemd um það, fyrst það kemur hér ábending úr sal. Þetta er einangruð framkvæmd sem ber sig sjálf, eins og Hvalfjarðargöng t.d., og þessi framkvæmd er ekki að fara að borga upp ýmiss konar annan kostnað. Hún er ekki að fara að verða einhver tekjulind fyrir önnur verkefni heldur verður hún skapandi fyrir samfélagið og afleidd verkefni þannig að heildarsamhengi kemur fram á öðrum stöðum. Arðurinn af þessari framkvæmd kemur fram óbeint, ekki beint, þannig að fjárfesting í þessu verkefni er alltaf arðbær. Þó að það sé ekki með beinum hætti þá er hún arðbær með óbeinum hætti og á þann hátt skiptir það ekki það miklu máli hvort upphafsfjárfestingin sé 10–14 milljarðar til eða frá þegar arðbærnin er af þessari stærðargráðu. Við erum að tala um 10% mun í stærðargráðu, af arðbærni til ákveðins tíma. Þegar við hugsum þetta í aðeins stærra samhengi og til lengri tíma, framkvæmd til 100 ára, þá jafnast 14 milljarða munurinn út á þeim tíma og verður brotabrot af upphafskostnaðinum þegar allt kemur til alls.

Ég er fylgjandi því að við förum í skipulagningu á einhverri framkvæmd eins og Sundabrautinni. Af mörgum ástæðum hefur verið greint frá því að staðsetning í kringum Kleppsvík, sá endapunktur í Reykjavík hérna megin við Grafarvoginn, á nesinu, skapi í rauninni of mikla þéttingu á umferðinni. Umferðin í íbúðabyggðinni sem er þarna við Vogana yrði mun óþægilegri, ef ég orða það þannig, heldur en hún er núna. Næg er umferðin þarna, ég kannast við það þegar það gerist að ég fer Sæbrautina í þá áttina, þá stoppar umferðin oft við höfnina og er orðin þétt strax þar. Að bæta við annarri umferð þangað, inn og út — staðsetningin er aðeins of innarlega, við getum orðað það þannig. Það væri mun betri dreifing að fara aðeins utar þannig að fólk geti ákveðið aðeins fyrr hvort það er að fara úr þrengingunum sem eru við Reykjanesbraut og Sæbraut og Miklubraut og er að fara vestur eftir, vestur á land, eða er að fara í miðbæinn eða í þá áttina. Þar myndi dreifingin vera mun náttúrulegri, myndi maður ætla, og einnig myndi sú leið, með göngum tvímælalaust, gefa miklu meiri sveigjanleika um það hvar göngin enda, hvar endapunkturinn á að vera á þessum samgönguframkvæmdum. Brúin er mun takmarkaðri í því sambandi af því að vegakerfið á þeim stað er mun þéttara akkúrat eins og er og byggðin í rauninni líka. Það eru meiri þrengsli þarna nú þegar og þrengsli eru ekkert rosalega góð þegar kemur að svona vegaframkvæmdum sem eiga að búa til tengingar milli hverfa, milli landshluta. Ef við hugsum þetta aðeins stærra og aðeins lengra þá held ég að augljósast væri að takmarka okkur alla vega ekki við brú milli Kleppsvíkur og Gufuness. Það er í rauninni eina athugasemdin sem ég hef nákvæmlega við þessa tillögu. Ef nákvæmlega þessi setning væri ekki, ef texti þingsályktunartillögu um svona framkvæmd væri opnari, þá held ég að það væri mun auðveldara að fá stimpil Alþingis á þessa framkvæmd. Bara það að búa til þessa takmörkun á tillögunni getur hindrað það. Það er til málefnaleg gagnrýni um að þessi staðsetning sé ekki heppileg til lengri tíma litið og meira að segja fyrir þá íbúa sem búa á þessu svæði nú þegar. Hér er talað um að þeir sem búa á svæðinu geti ekki skipt sér of mikið af en það er nú einfaldlega þannig að við höfum sett okkur þau markmið að hafa samráð við fólk sem býr í nágrenninu. Við höfum samþykkt sáttmála um sjálfsákvörðunarvald sveitarfélaga. Það er líka bundið í lög og við erum með Evrópusáttmála um það. Þó að við hérna séum líka kjörnir fulltrúar þá þarf að taka tilliti til fólksins í nærumhverfinu sem þetta hefur bein áhrif á.