153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Sundabraut.

60. mál
[16:51]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. 14 milljarða kostnaðaraukinn við það að gera Sundagöng en ekki Sundabrú er til langs tíma litið, t.d. 100 ára, ekkert rosalega há fjárhæð, eða 140 millj. kr. á ári. En mér finnst líka áhugavert að 20% minni notkun væri á Sundagöngum miðað við Sundabrú. Mér finnst Borgarfjarðarbrú falleg brú. Þegar ég var lítill þá keyrðum við alltaf inn Borgarfjörðinn og brúin var gríðarlega umdeild. Ég held að enginn deili um Borgarfjarðarbrúna í dag. Við erum með falleg mannvirki eins og Golden Gate brúna, Brooklyn-brúna og fleiri brýr í heiminum sem eru gríðarlega falleg mannvirki. Ég tel að Sundabrú geti verið í þessum flokki eins og Hallgrímskirkja, Perlan og önnur glæsileg mannvirki í borginni og mikilvæg í borgarlandinu, eins konar „landmark“-bygging, með leyfi forseta. Þetta er því mikilvægt.

Varðandi Vestfirði þá vil ég taka fram að það var tengingin við Hólmavík sem olli því að farið var yfir Steingrímsfjarðarheiði. Ísfirðingar notuðu t.d. Þorskafjarðarheiðina mjög mikið áður en vegurinn yfir Þröskulda kom. Varðandi það sem hv. þingmaður talar um þá tel ég að þessi tillaga fari ekki í stríð við íbúa í Grafarvogi. Það má setja nokkra milljarða í það bara til að vera í sátt við íbúa. Það er mjög mikilvægt að sátt sé við alla Reykvíkinga og ekki síst íbúa Grafarvogs. Það er að sjálfsögðu grundvallaratriði. Það breytir því ekki að íbúar í einu hverfi geta ekki stöðvað þessa mikilvægu framkvæmd. Ég skora á hv. þingmann að leggja fram breytingartillögu um staðsetningu og við erum að sjálfsögðu opin fyrir öllu. (Forseti hringir.) Spurningin er þessi: Hvort vill hv. þingmaður frekar Sundabrú eða Sundagöng?