153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Sundabraut.

60. mál
[16:55]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Vissulega er þetta líka mál fyrir íbúa í Vogahverfi, það er alveg hárrétt, en þar eru fyrir stór samgöngumannvirki; Sæbraut, Kleppsvegur og svo áfram Breiðholtsbrautina. Þetta myndi tengjast inn á þær stóru samgönguæðar í borginni en enginn er að segja að þessi umferð eigi að fara inn í hverfið, langt því frá. Einnig þarf að gera mannvirki sem beinir þessu beint inn á þessar stóru samgönguæðar svo þetta fari ekki inn í hverfin, svo það liggi algerlega ljóst fyrir. Það breytir því ekki að kappkosta þarf að þetta verði í sátt við íbúana á þessum svæðum, bæði vestast í Grafarvoginum og líka í Vogahverfi. Að sjálfsögðu þarf að gera það og vanda hönnunina með þeim hætti, og það kostar að sjálfsögðu peninga. Ég tel að það sé forgangsmál á fyrstu stigum að fá íbúa með sér, en það breytir því ekki að þetta er ekki eingöngu mál höfuðborgarinnar. Þetta er ekki mál þessara íbúa í Vogahverfi eða vestast í Grafarvogi. Það er það bara ekki. Þetta er líka hagsmunamál Akurnesinga, Vestlendinga, Vestfirðinga og íbúa á Norðurlandi. Þetta er hagsmunamál allrar þjóðarinnar og arðbærasta samgöngubót landsins. Ég heyri og fagna því að hv. þingmaður lítur á þetta sem góða framkvæmd. Þetta er spurning um staðsetninguna. Göng eða brú — það má skoða með opnum huga og ég veit að Norðmenn hafa verið að skoða flotgöng, t.d. yfir Sognsfjörðinn, sem er ný tækni. Þeir hafa ekki enn þá farið af stað með það. Ég tel að þessi brú geti orðið mjög falleg í landslagi höfuðborgarsvæðisins og í bílaborginni Reykjavík. Maður kemur til Reykjavíkur og gapir yfir hvers konar bílaborg þetta er. Þetta mun ekki auka vægi borgarinnar. (Forseti hringir.) Þetta mun hins vegar dreifa umferðinni og skapa stórkostleg tækifæri fyrir Reykvíkinga og t.d. hverfi uppi á Kjalarnesi.