Sundabraut.
Forseti. Gagnrýnin sem hefur komið fram í Vogabyggð er ekkert tengd því að umferðin fari inn í hverfin heldur á hún við þessa tengingu eins og hún hefur verið teiknuð upp inn á þessar stofnbrautir, að næg sé þéttnin nú þegar og því myndi þetta ekki bæta úr. Hins vegar er mögulega meira pláss fyrir umferð af því tagi sem gert er ráð fyrir að verði um Sundabrautina mun vestar, hinum megin við hafnarsvæðið. Því held ég að við ættum alla vega tvímælalaust að skoða (EÁ: Í göngum.) — í göngum, já, vissulega. Ég held að það sé allrar athygli vert. Mér finnst það rökrétt þegar ég skoða það, án þess að hafa sérfræðiþekkingu á því, en þær sviðsmyndir sem hafa komið fram um þetta mál segja það nákvæmlega sömuleiðis og því er ég sammála þeirri greiningu. Ég hef ekki sérfræðiþekkingu til að gagnrýna þá niðurstöðu og vísa í orð þeirra sem gerðu greiningarnar. Kostnaðurinn er vissulega meiri en ég held líka að langtímanotkun yrði betri. Einhvers konar brú gæti líka farið þarna yfir t.d. fyrir annars konar umferð heldur en þyngri umferð sem færi frekar í gegnum göngin, t.d. fyrir léttari samgöngumáta (EÁ: Rafskútur.) — eitthvað því um líkt, hv. þingmaður, rafskútur, hjólreiðar, gangandi vegfarendur o.s.frv. Það er svolítill krókur að fara alveg inn eftir að upptökum Elliðaár, en sjáum til. Við þurfum líka að hafa í huga í heildarsamhenginu, þegar svona er gert, hvernig íbúðabyggð myndi byggjast upp í kringum þetta stóra mannvirki.