Sundabraut.
Forseti. Við erum hér að ræða um tillögu til þingsályktunar um Sundabraut og ég er einn af stuðningsmönnum þessarar tillögu. Ég verð að segja alveg eins og er að þessi umræða um Sundabraut minnir mig að mörgu leyti á þá stórfurðulegu umræðu sem var í gangi fyrir um 30 árum síðan þegar verið var að tala um að gera ofanbyggðaveg sem ætti að tengjast Reykjanesbraut og yrði fyrir ofan byggðina, þannig að þegar þú kæmir af Suðurnesjum færir þú Reykjanesbrautina og þar tæki við ofanbyggðavegur sem síðan myndi kvíslast niður í Garðabæ, Kópavog og Reykjavík. Ef viðkomandi væri t.d. að koma vestan af fjörðum eða Keflavík eða Suðurlandi þá þyrfti hann ekki að fara í gegnum öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu til þess að komast á Suðurnesin. Öll sveitarfélögin nema Seltjarnarnes, það væri ekki hægt að fara þar í gegn. Nú þarf að fara í gegnum öll hin sveitarfélögin, þ.e. Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík. Þegar ég flutti á sínum tíma í Hafnarfjörðinn þá var einmitt verið að tala um þennan ofanbyggðaveg og að hann væri bara á næstu grösum og kæmi innan örfárra ára, kannski fjögurra, fimm ára. Hann er ekki kominn í dag og ekki er hægt að leggja hann vegna þess að byggðin hefur verið sett upp þannig að það er alveg útilokað.
Ég styð Sundabraut heils hugar en hef á tilfinningunni að þessi Sundabraut sé á nákvæmlega sama stað og ofanbyggðavegurinn á sínum tíma. Þetta verður rætt og rætt þangað til að búið er að ganga þannig frá því að vonlaust sé að setja brú yfir sundin. Þá þarf auðvitað að fara í jarðgöng. En á sama tíma vona ég heitt og innilega að það verði farið í að gera Sundabraut og fundin lausn á ofanbyggðavegi á höfuðborgarsvæðinu. Sundabrautin ein leysir ekki vandann en það þarf að skoða þetta heildstætt og búa til ofanbyggðaveg, hvernig sem það yrði gert. Ef við horfum bara á tæknina og hvernig göng hafa verið boruð úti á landi þá ætti ekki að vera mikið vandamál að gera ofanbyggðagöng, fyrst búið er að eyðileggja ofanbyggðaveg, sem tengjast síðan við Sundabraut eða Sundagöng. Göngin myndu byrja í Hafnarfirði, kæmu upp í Kópavogi eða Breiðholti og síðan aftur í Grafarvogi til að tengjast Mosfellsbæ og svo tækju Sundagöng eða -brú aftur við yfir á Kjalarnesið. Þessa heildstæðu lausn verðum við að fara út í.
Við verðum að hugsa í lausnum en númer eitt og tvö þurfum við að fara að gera eitthvað, ekki bara tala og tala, einmitt það drap ofanbyggðaveginn. Þá var bara talað og talað: Jú, hann er að koma. En núna sitjum við föst í umferðinni kvölds og morgna og það er undarlegt að við skulum ekki vera búin að leysa þann vanda, og að við séum ekki einu sinni byrjuð að leysa hann, heldur eigi að einblína á þrengingar vega og borgarlínu, sem er óborganleg lína á allan hátt að mínu mati, bæði sem brandari og síðan er það kostnaðurinn við hana. Það er alveg útilokað, meðan við getum ekki rekið þetta einfalda strætókerfi okkar nema með einhverjum 5 milljarða halla, að búa til einhvern óskapnað sem heitir borgarlína, fara fyrst í 100 milljarða kostnað og reka þetta svo með tilheyrandi tapi upp á tugi milljarða. Það gengur ekki upp.
Við vitum að þessar aðstæður sem við erum í skapa einmitt miklu meiri mengunarvanda, að bílar séu kvölds og morgna að silast á 50 km hraða úr miðbænum í Mosfellsbæ, Kópavog, Hafnarfjörð og suður með sjó. Ég vona heitt og innilega að Sundabraut muni verða. Mér er eiginlega alveg sama um hvort það verði brú eða göng, bara að eitthvað verði gert, að ekki verði talað meira um það heldur framkvæmt. Við verðum, eins og ég sagði áðan, að leysa þennan vanda. Við vitum það öll sem höfum verið erlendis og keyrt þar. Ég hef t.d. tekið bíl frá Kaupmannahöfn alveg niður að þýsku landamærunum og þegar maður keyrir þessa vegalengd þá fer maður ekkert í gegnum alla bæi og sveitarfélög á leiðinni. Maður keyrir bara á einum stofnvegi og ef maður þarf að fara inn í bæina þá er keyrt af stofnvegum þangað niður. En á Íslandi þá þurfa þeir sem fara frá Keflavík að aka í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík til að komast upp í Mosfellsbæ. Eins og ég sagði eru öll sveitarfélög undir nema Seltjarnarnes. Hvers eiga þeir að gjalda að fá ekki að vera með? Það ætti kannski að vera skylda að fara einn hring um Seltjarnarnesið til að komast vestur — það er kannski næst á dagskrá? Nei, þetta er ömurlegt og ömurleg staða sem við erum í kvölds og morgna. Þetta þarf að leysa og leysist vonandi með Sundabraut og ofanbyggðavegi, sem er ólíklegt, en kannski alla vega með ofanbyggðagöngum.