Sundabraut.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka þær ágætu umræður sem hér hafa átt sér stað og þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni og hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir ágætar ræður um málið. Þessi þingsályktunartillaga, um að fela innviðaráðherra að beita sér fyrir því að öllum undirbúningi við gerð Sundabrautar, með brú milli Kleppsvíkur og Gufuness, verði hraðað eftir fremsta megni og framkvæmdir verði hafnar hið fyrsta og að lagning Sundabrautar verði forgangsverkefni í samgöngubótum landsins, er gríðarlega mikilvæg. Það er gríðarlega mikilvægt að öllum undirbúningi við gerð Sundabrautar verði hraðað. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta verði forgangsverkefni í samgöngubótum, Af hverju? Jú, þetta er þjóðhagslega hagkvæmasta samgönguframkvæmd sem íslenska þjóðin getur farið í. Þetta mun gjörbreyta t.d. lífskjörum íbúa á Akranesi, þeirra sem sækja vinnu til Reykjavíkur í dag. Þetta mun stytta ferðatíma þeirra um hálftíma, klukkutíma á dag. Þetta mun bæta lífskjör þeirra. Þeir munu þurfa að eyða minni tíma í bifreiðum sínum og þetta mun leysa að vissu leyti umferðarvanda íbúa í Grafarvogi, í Mosfellsbæ og í austurhluta borgarinnar, í Grafarholti, á leið til vinnu í borginni.
Það er algjört ófremdarástand í umferðarmálum í Reykjavík, algjört. Það er rétt sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson sagði, auðvitað þarf líka að skoða ofanbyggðaveg, að sjálfsögðu þarf að gera það. Þegar maður er hér í Reykjavík í umferðinni þá finnst manni það algerlega með hreinum ólíkindum að þetta sé ekki löngu, löngu komið. Árið 1975 var fyrst sett fram tillaga um Sundabraut. Þetta kom í aðalskipulagi Reykjavíkur árið 1984 fyrir 28 árum síðan, nei, 38 árum. Tíminn líður hratt, það eru 38 ár síðan og ekki er enn farið að byrja á þessu. Í kosningabaráttu eftir kosningabaráttu í Reykjavík hefur verið talað um Sundabrú og Sundagöng og aldrei gerist neitt. Nú liggur hins vegar fyrir yfirlýsing hæstv. samgönguráðherra og borgarstjórans í Reykjavík sem var undirrituð 6. júlí 2021 þar sem kemur fram að stefnt verði að því að framkvæmdir við Sundabraut geti hafist eigi síðar en árið 2026 og brautin verði tekin í notkun 2031. Það kemur fram að aðilar séu sammála um að vinna hratt og vel að ofangreindum undirbúningi. Ég tel að þessi yfirlýsing, svo góð sem hún er, sé ekki nógu góð varðandi tímarammann, hann er ekki nægilega góður. Það á að hefjast handa strax. Ef það er hægt að byrja framkvæmdir 2024, helst í lok næsta árs, þá á að gera það, ekki bíða til ársins 2026. Ég get lofað ykkur því, ég stend við það, að með þessum tímaramma þá verður Sundabraut ekki tekin í notkun árið 2031. Það mun ekki gerast af því að skipulagsbreytingarnar og mat á umhverfisáhrifum mun taka lengri tíma. Ef þetta verður ekki gert í sæmilegri sátt við íbúa í Vogunum og í Grafarvogi munu verða enn þá meiri tafir og ef Reykjavíkurborg stendur ekki í lappirnar þá mun það tefjast enn þá meira. Við getum jafnvel verið að tala um 2040, að þá verði Sundabraut kannski tekin í notkun. Við getum jafnvel verið að tala um það að framkvæmdir við Sundabraut hefjist ekki fyrr en í kringum 2030. Það er allt of seint. Við megum ekki bíða eftir því að framtíðin og nútíminn komi til okkar í samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu og til landsbyggðarinnar, samgöngubótum til Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra. Þessi samgöngubót mun gjörbylta tengingum landsbyggðarinnar, Norðvesturkjördæmis, við höfuðborgarsvæðið. Þetta er ein allra hagkvæmasta framkvæmdin sem til er og þá er ekki eftir neinu að bíða. Ef við ætlum að setja peninga í einhverjar vegasamgöngur á Íslandi þá setjum við peningana í þetta og byrjum strax af því að þá byrja áhrifin strax að koma fram. Svo einfalt er það.
Samfélagslegur ábati af verkefninu er á milli 185–236 milljarðar kr. Innri vöxtur framkvæmdanna er 11,5–12,2%. Það er gríðarlega hár innri vöxtur því að yfirleitt er miðað við 3,5% innri vöxt. Það er algerlega með ólíkindum að ekki sé löngu byrjað á þessu, þetta á að vera algjört forgangsatriði. Og um það fjallar þessi tillaga, að þetta verði forgangsverkefni og tímaramminn í yfirlýsingu borgarstjóra og hæstv. samgönguráðherra stenst ekki. Það þarf að byrja strax. Það verður að byrja strax. Skipulagsbreytingarnar eiga að vera löngu komnar, þetta kom í aðalskipulagi 1984. Eftir hverju er verið að bíða? Það þarf að setja brúna strax inn í deiliskipulag. (IngS: Aldarafmælinu. Ekki fjörtíu ….) Reykjavíkurborg varð 200 ára 1986. (Forseti hringir.) En um þetta fjallar þessi tillaga og ég efast ekki um að allir landsmenn, íbúar Norðvesturkjördæmis, íbúar höfuðborgarsvæðisins og íbúar á landsbyggðinni í heild, séu í hjarta sínu sammála þessari tillögu.