153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

61. mál
[17:33]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lengja þetta mikið en við erum hérna að ræða um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég var hér í þingsalnum á sínum tíma og var bjartsýnn fyrir hönd fatlaðs fólks þegar við samþykktum 2019 að fela ríkisstjórninni að lögfesta þennan samning í síðasta lagi 13. desember 2020, eftir þrjár vikur verða liðin tvö ár frá þeim degi. Því miður hefur ríkisstjórnin dregið lappirnar við að lögfesta samninginn og með sama hraða sé ég ekki fram á að henni dugi næsti áratugur, hún þarf sennilega lengri tíma til að ganga frá þessu máli. Það segir okkur nokkuð um forgangsröðunina, vegna þess að það hefur sýnt sig á Alþingi að ef á þarf að halda og koma þarf einhverjum hlutum í gegn þá er það gert einn, tveir og þrír. Þegar það varðar verst setta hópinn okkar þá eru lappirnar dregnar, það tekur allt of langan tíma og þá er eins og áhuginn hverfi og málið er dregið á langinn. Þetta gildir líka um lögfestingu valfrjálsu bókunarinnar í málefnum fatlaðs fólks þar sem eru kæruleiðir og annað til þess að tryggja réttindi fólks. Við búum nú þegar í þjóðfélagi þar sem mannréttindi fatlaðs fólks eru langt á eftir, þess vegna er nauðsynlegt að drífa þetta mál í gegn og koma í þann farveg. Þetta á að vera hægt og það eina sem við þurfum er vilji. Ég að vona að ríkisstjórnin sýni hann í eitt skipti, spýti í lófana og klári þetta mál.