réttindi sjúklinga.
Virðulegi forseti. Hv. þingheimur og kæra þjóð. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir þarft frumvarp. Mig langar til að deila með ykkur minni reynslu að því hvað skeður þegar börn eru sett í uppskurð sem þau hafa ekkert vald yfir sjálf. Það er þannig að þegar ég er rúmlega ársgamall þá fór móðir mín með mig með sér til Ameríku að eltast við föður minn sem hafði stungið af. Hún var þar í átta mánuði og á þessum tíma umgekkst hún fullt af fólki frá Ameríku og margir töldu henni trú um það að það besta sem væri hægt að gera fyrir unga drengi væri að umskera þá, þannig að ég kem til baka innan við tveggja ára gamall umskorinn. Þetta olli mér engum vandræðum til að byrja með. Ég fór í Miðbæjarskólann í sjö ára bekk og átta ára bekk og stundaði leikfimi af fullum krafti og naut þess að vera bara eins og hinir krakkarnir. Svo kem ég í Melaskóla níu ára gamall, fór í níu ára bekk. Ég var í Melaskólanum í fjögur ár, í níu ára bekk, tíu ára bekk, ellefu ára bekk og tólf ára bekk. Um leið og ég byrjaði í leikfimi í níu ára bekk í Melaskólanum fóru strákarnir að gera grín að typpinu á mér og sögðu að ég væri með kallatyppi. Ég get sagt ykkur það, kæra þjóð og hv. þingheimur, að ég fór ekki leikfimi í fjögur ár. Ég vandi mig á það að koma með ótrúlegustu afsakanir fyrir því af hverju ég gæti ekki stundað leikfimi í það og það skiptið, ég var sem sagt alltaf að villa á mér heimildir. Auðvitað gat ég farið í leikfimi, það var ekkert að mér annað en það að ég þoldi ekki að það væri verið að gera grín að typpinu á mér, að það væri verið að benda á mig. Ég hafði engan til að tala um þetta við. Ég er alinn upp hjá afa og ömmu því að móðir mín varð eftir í Ameríku og ég var þarna, þessi litli drengur sem ég náttúrlega var, níu ára gamall, tíu, ellefu og tólf, og ég bara skammaðist mín fyrir þetta og var gjörsamlega hjálparlaus. Ég legg því áherslu á það að slíkar aðgerðir séu engan veginn framkvæmdar á ungum piltum fyrr en þeir eru orðnir nógu gamlir til að ákveða það sjálfir. Þetta hef ég til málanna að leggja. Góðar stundir. Áfram veginn.