153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:02]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Nýlega óskaði ég eftir því að hæstv. forsætisráðherra kæmi fyrir fjárlaganefnd til að svara þar spurningum nefndarinnar, í grunninn um það hvort forsendur fjárlaga standist, hvort ríkisstjórnin ætli sér að halda áfram sölu á Íslandsbanka. En við vitum öll að ríkisstjórnin hefur ekki talað einu máli um stöðu mála eftir að skýrsla Ríkisendurskoðunar birtist. Undir eru 76 milljarðar samkvæmt frumvarpinu. Nú virðist koma á daginn að það getur forsætisráðherra ekki gert því að — ég átta mig ekki almennilega á því; hvort fjármál ríkisins eigi ekki undir hana, hagstjórn ríkisins eigi ekki undir hana þrátt fyrir að hún sitji í ráðherranefnd um efnahagsmál. Við vitum öll að pólitískt snýst þetta mál um afstöðu Vinstri grænna til framhaldsins. En forsætisráðherra mun ekki koma fyrir fjárlaganefnd og eftir stendur þá sú spurning: Er hér að myndast 76 milljarða gat í fjárlögum? Ég óska liðsinnis forseta við að upplýsa um þetta mál.