mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað svolítið þreytandi að ráðherrar fáist ekki til að mæta fyrir þingnefndir til að ræða við þær um mikilvæg mál sem augljóslega eru á sameiginlegri ábyrgð, sér í lagi ráðherra í ráðherranefnd um efnahagsmál. Ég vildi rifja upp að fyrir sumarfrí óskaði hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson eftir því að fá alla ráðherra í ráðherranefnd um efnahagsmál á fund efnahags- og viðskiptanefndar til að ræða margvíslegar hugmyndir fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagslífið en fékk ekki. Við óskuðum eftir úrskurði forseta um þá ákvörðun og ég veit ekki betur en að við bíðum hans enn. Ég velti fyrir mér hversu lengi hæstv. forseti ætlar að draga lappirnar í þessu máli.