mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Forseti. Við fengum minnisblað í fjárlaganefnd þar sem verið er að fjalla um hvaða ráðherrar eigi og geti mætt á fund nefndarinnar og vorum hvött til að kalla inn fjármála- og efnahagsráðherra um þetta málefni. En við erum líka með tvær ráðherranefndir, annars vegar um ríkisfjármál og hins vegar efnahagsmál, þar sem í eru alls fjórir mismunandi ráðherrar. Forsætisráðherra er í báðum nefndunum. Það má velta fyrir sér til hvers þessar nefndir eru á heildina litið, ef ekki einmitt til að fjalla um efnahagsmál og ríkisfjármál og þar af leiðandi málefni fjárlaganefndar. Ég bað t.d. um að allir ráðherrar þessara nefnda, ráðherranefnda, myndu mæta á fundinn, a.m.k. forsætisráðherra, af því að það hafa verið svo margar sögur um það hvernig á að fara með ríkisfjármálin í kjölfarið á þessari klúðurssölu á Íslandsbanka. En það er verið að reyna að snúa út úr með einhverjum minnisblöðum: Nei, ekki svona, ekki hinsegin, gerið þetta öðruvísi. Það eru nefndarmenn sem ráða þessu.