mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Herra forseti. Ég virðist ekki vera nægilega vel gefin til að átta mig á skúmaskotum þessa Íslandsbankasölumáls vegna þess að þau teygja sig mjög víða. Hér í fleiri vikur áður en Alþingi fékk skýrsluna afhenta var m.a. hæstv. forsætisráðherra komin með skýrsluna. Af hverju? Af því að málið heyrði undir hana, vegna þess að hún situr í ráðherranefnd um efnahagsmál, vegna þess að hún sem fyrirliði þessarar ríkisstjórnar á að hafa skoðun á efnahagsmálum og á að hafa skoðun á því hvernig þessi mál tala saman. En þegar Alþingi, fjárlaganefnd Alþingis, biður hæstv. ráðherra að koma á fund til að lýsa skoðun sinni á því hvaða áhrif það hafi mögulega á fjárlög og þar af leiðandi þá almannaþjónustu sem þessi sami forsætisráðherra ber ábyrgð á sem fyrirliði, þá snertir málið hana ekki. Þá er það ekki á hennar sérsviði. Þá þarf hún ekki að mæta. Niðurstaðan virðist vera sú, samkvæmt fjögurra blaðsíðna minnisblaði, að hún ætli ekki að mæta.