mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Herra forseti. Maður hlýtur náttúrlega að deila þessari furðu þingmanna á því að forsætisráðherra landsins neiti að mæta á fund fjárlaganefndar og ræða efnahagsmál vegna þess að þetta heyri ekki undir hennar málefnasvið. [Hlátur í þingsal.] Hún er verkstjóri ríkisstjórnarinnar og hún er auk þess í sérstöku ráði um efnahagsmál innan ríkisstjórnarinnar og eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson nefndi áðan fær hún gögn á grundvelli þess um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Nú hlýt ég að spyrja hæstv. forseta hvort hann sé sammála því sem hann var að lesa upp áðan, að það heyri ekki undir hana að koma fyrir fjárlaganefnd og ræða efnahagsmál. Annars hlýt ég að biðja hann að veita okkur þingmönnum liðsinni. Hér er hæstv. forsætisráðherra mætt. (Gripið fram í.)