153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:10]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hlýt að koma hér upp og fá að bera af mér sakir því að ég hef ekki fengið neina ósk um að mæta á fund fjárlaganefndar. Þannig að ég hef ekki hafnað neinu fundarboði eins og hv. þingmenn saka mig hér um. (Gripið fram í.) Hv. fjárlaganefnd verður að gera það upp við sig hvort hún vill óska eftir minni nærveru (HKF: Það hefur þegar verið gert og engu verið svarað.)— Ja, ég hef ekki fengið neitt boð þannig að þá þarf hv. fjárlaganefnd að ræða málin í sínum ranni. (Gripið fram í.)— Það kom ekkert svar úr forsætisráðuneytinu eða a.m.k. ekki frá forsætisráðherra.