153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:12]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Það er áhugavert samtal sem hér er að eiga sér stað. Nú á ég ekki fast sæti í hv. fjárlaganefnd en var þó svo heppin að fá að sitja þar sem varamaður. Ég held að það hafi alveg komið skýrt fram hér hvernig verkferlarnir eru. Þrír eða fleiri nefndarmenn geta beðið um ákveðnar gestakomur. Það er svo væntanlega formaður nefndarinnar sem svarar því og afgreiðir það. En það er í hæsta máta sérstakt að koma hingað upp og saka hæstv. ráðherra um hluti sem ekki eru á þeirra ábyrgð. Fólk getur ekki mætt á fund ef ekki er búið að boða það á fund. Ég veit að hér hefur ítrekað verið bent á að samtal við ráðherra er hægt að eiga hér í þingsal undir ákveðnum dagskrárliðum og þeirri leið hefur verið beint til hv. fjárlaganefndar. En hér er einhver allt önnur umræða í gangi.