mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Herra forseti. Ég lagði fram þessa ósk í fjárlaganefnd. Frá þessari ósk greindi ég líka hér inni í þingsal. Frá henni hefur verið greint í fjölmiðlum landsins. Það er með nokkrum ólíkindum að hún hafi farið fram hjá þingliðum öllum í Vinstri grænum. Tveir formenn fjárlaganefndar starfandi í dag, annars vegar hv. þm. Haraldur Benediktsson, hvöttu mig til að fara með þetta samtal í þingsal ef ég væri óánægð með niðurstöðuna. Það hefur hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir líka gert. Ég er einfaldlega að fara að þeirra ráðum. Ég óska eftir því að forsætisráðherra komi fyrir nefndina og upplýsi um það hvort það sé að verða til 76 milljarða gat í fjárlögum vegna afstöðu Vinstri grænna til áframhaldandi bankasölu. Kannski væri lag fyrst hæstv. forsætisráðherra er hér í húsi og inni í sal að hún komi upp í pontu og upplýsi um sína afstöðu til málsins. Við getum þá í fjárlaganefndinni haldið áfram með vinnuna í fjárlagagerðinni. (Forseti hringir.) Hv. þm. Jódís Skúladóttir veit allt um það að eftir þessu var óskað inni í nefndinni og allir voru ágætlega upplýstir um það.