153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:15]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Þetta er mjög áhugavert mál og ég verð nú að segja eins og er að þetta lítur eiginlega verr út eftir því sem við komumst frekar til botns í málinu. En það er rétt, minnisblaðið er sent frá nefndasviði. Ég geri ráð fyrir að þar hafi hv. formaður fjárlaganefndar haft hönd í bagga, annað væri í hæsta máta óeðlilegt. En jafn óeðlileg er þessi niðurstaða formannsins. Að hafna þessari ósk þvert á þingskapareglur án þess að hafa samband við ráðherra er eiginlega ekkert mikið skárra en ef ráðherrann sjálfur hefði hafnað því að mæta. Það er ágætt að fá þetta fram hér, en rétt skal vera rétt. Hæstv. forsætisráðherra fékk ekki þessa beiðni en formaður fjárlaganefndar situr sannarlega eftir með svartapétur í fanginu og ég óska eftir skýringum.