153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:16]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Þetta hefur verið svolítið sérkennileg atburðarás undir þessum lið, verð ég að segja. Höfum það í huga að verið er að biðja hæstv. forsætisráðherra um að mæta fyrir fjárlaganefnd vegna þess að mögulega vantar 76 milljarða inn í fjárlögin. Hæstv. fjármálaráðherra lýsti því yfir á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun að þetta skipti nú kannski ekkert svo rosalega miklu máli vegna þess að staðan að öðru leyti væri mjög góð, hærri skuldastaða mögulega upp á 6% aukin vaxtagjöld, um mögulega 4–5 milljarða, er bara eitthvert aukaatriði í samhengi fjárlagagerðarinnar. Svo er því haldið fram af stjórnarliðum að hægt sé að eiga orðaskipti við hæstv. forsætisráðherra undir öðrum liðum hér inni í þingsal. 76 milljarðar undir, allt þetta sem ég rakti hérna áðan — og þetta á að taka þá bara hvað, í óundirbúnum fyrirspurnatíma? Það er auðvitað ekki svona sem við gerum þetta. Hæstv. forsætisráðherra hlýtur að koma hingað upp og segja hvort ráðherrann er tilbúinn til að mæta á fund nefndarinnar og sá sem stýrir nefndinni núna, hv. þm. Harald Benediktsson, (Forseti hringir.) hlýtur að þurfa að gefa skýringu á því misræmi sem hér er að koma í ljós. Það eru gríðarlega háar fjárhæðir undir, þetta eru sjálf fjárlög ríkisins og svona vinnubrögð getum við ekki liðið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)