mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.
Herra forseti. Vegna þess að forseti minnti okkur hér á að ráðherra mætti kalla til vegna þeirra málefna sem heyra undir þá samkvæmt forsetaúrskurði þá bendi ég forseta á 2. lið b í 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna innan Stjórnarráðs Íslands þar sem stendur að forsætisráðuneytið fari með ráðherranefndir um efnahagsmál og ríkisfjármál. Þannig að ef sá ráðherra á ekki að mæta til fjárlaganefndar til að ræða þær nefndir, hver þá, forseti, hver þá? Þar sem hæstv. ráðherra kom hér upp til að bera af sér sakir, þær sakir að formaður fjárlaganefndar hefði greinilega ekki sinnt starfi sínu sem nefndin taldi að hún hefði gert, þá vakna náttúrlega smá áhyggjur af því hvernig slíkt getur átt sér stað innan lítils þingflokks, þar sem maður hefði haldið að boðleiðir væru ekki mjög langar milli fólks, að boð berist ekki á milli. Að fólk sem rekur þingflokk (Forseti hringir.) með slíkum eindæmum eigi að heita að vera að reka landið er náttúrlega áhyggjuefni. En þátttaka ráðherrans í umræðunum hér hlýtur að þýða að ráðherra er upplýst um að nærveru hennar sé óskað hjá fjárlaganefnd og muni mæta á næsta fund. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)