153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

mæting forsætisráðherra á fund fjárlaganefndar.

[15:19]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill að gefnu tilefni ítreka þá skoðun sína að þingsköp beri að túlka með þeim hætti að þegar ráðherrar eru beðnir að koma fyrir þingnefndir vegna einhverra mála þá sé það vegna þeirra mála sem þeir bera ábyrgð á. Fjárlagafrumvarpið og undirbúningur þess er ótvírætt á verksviði hæstv. fjármálaráðherra.