Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Frá og með 1. júlí 2020 var hægt að sækja um og fá stafræn ökuskírteini í síma. Stafræn ökuskírteini eru jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu. Þáverandi dómsmálaráðherra var afar ánægður með þetta og einnig innviðaráðherra sem sagði að Ísland væri annað landið í Evrópu sem tæki upp notkun stafrænna ökuskírteina og fetaði þar í fótspor Norðmanna. Hæstv. fjármálaráðherra sagði á þessum tíma stafræn ökuskírteini áþreifanlegt skref í þá átt að gera þjónustu hins opinbera stafræna og aðgengilega. „Flestir eru með símann á sér öllum stundum en margir þekkja það að plastið gleymist. Þetta er því liður í að einfalda líf fólks,“ sagði Bjarni Benediktsson á þessum tíma. Ríkislögreglustjóri gefur út stafræn ökuskírteini en sýslumaður gefur út hefðbundin ökuskírteini í umboði ríkislögreglustjóra. Stafræn ökuskírteini eiga að vera jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu.
Staðreyndin er sú að stafræn ökuskírteini gilda ekki á Íslandi í öllum tilfellum og þau gilda ekki í Noregi eða annars staðar í Evrópu til að leigja sér t.d. bifreið og þá ekki heldur í Bandaríkjunum en þar er einnig útilokað að leigja sér bifreið með rafrænu ökuskírteini. Þá er t.d. ekki hægt að nota lögleg ökuskírteini og ekki rafræn skírteini í bönkum á Íslandi. Fólk hefur lent í miklum erfiðleikum og kostnaði vegna þessa erlendis og verið búið að borga fyrir leigu á bifreið og fengið hana en setið síðan uppi með kostnaðinn vegna þess að það var eingöngu notað rafrænt skírteini og fólki neitað um bifreiðina og hefði mátt sekta það ef það hefði ekið um með rafrænt ökuskírteini. Þessi ökuskírteini, eins og það sem ég held hér á, eru þau einu sem gilda og eru almennt viðurkennd milli EES-ríkja. Það gildir ekki um stafrænu ökuskírteinin þar sem þau uppfylla ekki kröfur Evróputilskipunar um ökuskírteini. Ég skora á dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og fjármálaráðherra (Forseti hringir.) að taka þetta falska öryggi og upplýsa almenning um að það er gjörsamlega útilokað fyrir fólk að nota þessi rafrænu ökuskírteini erlendis.