Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þann 20. nóvember ár hvert er alþjóðlegur dagur barna. Í tilefni dagsins tóku nokkrir þingmenn úr öllum flokkum á þingi í gær formlega við hlutverki sem talsmenn barna hér á Alþingi og ég er einn þeirra. Sjónarmið og skoðanir barna og ungmenna eiga og þurfa að vera okkur leiðarljós í okkar störfum hér. Því er í mínum huga mjög mikilvægt að viðhalda þessu verkefni, að vera með ákveðna talsmenn barna á Alþingi. Í mínum fyrri störfum var ég svo lánsamur að vinna að stærsta umhverfisverndarverkefni á Íslandi en jafnframt í heiminum þar sem ég átti í miklum og ríkum samskiptum við börn úti um allt land og það var afar gagnlegt. Þau höfðu heilmikinn áhuga til að mynda á umhverfis- og loftslagsmálum og það hafa þau enn, vegna þess að, eins og fram kom í fræðslu ungmenna fyrir þingmenn fyrr í haust, þ.e. þessa talsmenn barna, þá var ýmsum vangaveltum og hugmyndum velt upp, m.a. sem tengjast umhverfis- og loftslagsmálum en jafnframt því sem lýtur að því að lækka kosningaaldurinn úr 18 árum. Það er óhætt að fullyrða að þróunin gengur almennt í þá átt að lækka kosningaaldur. Margar stjórnmálahreyfingar hafa sett þessi markmið í stefnuskrá sína, ýmis skref hafa verið stigin í þessa átt og fylgi við lækkun kosningaaldurs fer vaxandi víða um heim. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum lagt fram tillögu þessa efnis nokkrum sinnum og vil ég nota þetta tækifæri hér og geta þess að ég hyggst leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um kosningar þar sem við leggjum upp með að lækka kosningaaldurinn úr 18 árum í 16 ár í samhengi sveitarstjórnarkosninga.