153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

Störf þingsins.

[15:36]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Það ríkir óöld í samfélaginu. Hér veður uppi skipulögð glæpastarfsemi sem lengi hefur verið varað við af lögregluyfirvöldum, glæpastarfsemi sem hefur birtingarmynd sem skekur samfélagið og hræðir fólk. Nágrannar okkar á Norðurlöndum hafa mátt þola ófrið og stríð glæpagengja sem komið hafa sér fyrir í löndunum. Þar ríkir mikill ótti við framgang glæpamanna og svo langt er gengið að jafnvel lögregla veigrar sér við að fara inn í ákveðin borgarhverfi. Lögregla og yfirvöld hafa lengi kallað eftir auknum valdheimildum lögreglunnar til að stemma stigu við þessari þróun hér á landi. Gegn því hafa talað þingmenn í þinginu. Sami hópur þingmanna hefur talað gegn rafvarnarbúnaði lögreglunnar þar sem lögreglumönnum verði gert mögulegt að verjast með tækjum og vopnum sem eru notuð gegn lögreglunni af undirheimafólki. Það verður að tryggja lögreglunni heimildir og þann varnarbúnað sem þarf til að spyrna við fótum og mæta glæpagengjum svo viðunandi sé.

Virðulegi forseti. Þessi hópur þingmanna hefur sagt að lögreglunni sé ekki treystandi til að nýta auknar valdheimildir og upplýsingaöflun eins og lögregla í öðrum löndum býr við. Sífelldar árásir þingmanna á hendur lögreglunni og vantraust í hennar garð er þjóðhagslega hættulegt öryggi borgaranna.

Virðulegi forseti. En hvernig birtist traust þingmanna almenningi í landinu? Það birtist í því að trúnaður um skýrslu sem níu þingmönnum var afhent og trúnaður átti að ríkja um í rúman sólarhring var brotinn nær samstundis af þingmönnum sem afhent var skýrslan. Nú liggja allir þingmenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis undir grun um refsivert athæfi og trúnaðarbrot, nefndarmenn í þeirri nefnd þingsins sem á að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu og að rétt sé staðið að öllum málum, framlögum og farið sé að reglum og lögum í þinginu.

Virðulegi forseti. Það er skýr krafa okkar þingmanna og fólksins í landinu (Forseti hringir.) að nú þegar verði upplýst hver lak skýrslu Ríkisendurskoðunar í fjölmiðla.