Störf þingsins.
Forseti. Ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað. Í frumvarpi að lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er fjallað um tilboðssölu. Með leyfi forseta:
„Sala hluta með útboði eða skráning bréfa í kauphöll er ferli sem er frábrugðið hefðbundinni tilboðssölu. Sem dæmi er ekki um mat á einstaka tilboðum eða eiginlegar samningaviðræður við einstaka kaupendur að ræða …“
Með öðrum orðum: Þegar tilboðssala er notuð er gert ráð fyrir mati á einstaka tilboðum eða jafnvel samningaviðræðum við einstaka kaupendur. Er það í alvörunni svo að atriði sem ráðherra tekur ákvörðun um samkvæmt lögum sé hægt að útvista til annarra aðila með orðum eins og armslengd? Nei, auðvitað ekki. Þarna er engin armslengd. Ákvörðunin og ábyrgðin á þeirri ákvörðun er á borði ráðherra. Ráðherra fær rökstutt mat á borðið hjá sér og það verkefni að taka ákvörðun um einstaka tilboð miðað við þá greinargerð sem kemur fram í þessu frumvarpi.
Það eru engar hlutlægar reglur. Jafnræði milli þeirra sem lögðu fram tilboð var ekki tryggt. Þetta hefur verið sýnt fram á í skýrslu Ríkisendurskoðunar og viðurkennt á opnum fundum fjárlaganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ráðherra getur ekki lokað augunum og sagt að hann hafi ekki vitað betur. Ráðherra er ekki undirskriftarvél, ráðherra tekur ákvarðanir og á að bera ábyrgð á þeim. En þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja frekar rannsaka leka á skýrslu sem átti hvort sem er að birtast daginn eftir en ábyrgð ráðherra á klúðri við sölu á ríkisbanka.