153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

landamæri.

212. mál
[16:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Birgir Þórarinsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann nefnir sérstaklega hvort verið sé að koma með leið bakdyramegin með því að setja á laggirnar svokallaðar búðir þar sem fólk dvelur áður en það fer úr landinu þegar það hefur fengið synjun í sínum málum. Þetta kemur fram í umsögn Rauða krossins þar sem er fjallað um þetta úrræði sem heimilt er að beita til að útlendingur fái ekki inngöngu inn í landið. Þar segir að lögregla skuli tryggja að útlendingur sem uppfyllir ekki skilyrði fyrir komu til landsins, eða ekki liggur fyrir hvort viðkomandi uppfylli skilyrðin, fái ekki inngöngu í landið og er lögreglu heimilt að skylda viðkomandi til þess að dvelja á ákveðnum stað samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga eða beita öðrum úrræðum á grundvelli þeirra laga. Meiri hlutinn nefnir þetta í nefndarálitinu og við höfum rætt þetta innan nefndarinnar. Við bendum á, líkt og kemur fram í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins, að þegar einstaklingur gefur sig fram við stjórnvöld og lætur vita að viðkomandi sé í leit að alþjóðlegri vernd þá skal fara með mál hans samkvæmt reglum um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og viðkomandi verður þá ekki gert að halda sig á ákveðnum stað og ákvæðið feli því ekki í sér frelsisskerðingu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ég held að þetta svari þessu mjög vel.

En af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega þessar búðir þá fór nefndin til Noregs og Danmerkur til að kynna okkur með hvaða hætti þær þjóðir standa að þessum málum. Við skoðuðum svona búðir og ég hef sjálfur skoðað svona búðir, m.a. í Grikklandi, og í raun og veru er hér bara um að ræða úrræði sem er nauðsynlegt til að halda utan um þann hóp sem hefur fengið synjun á sínum málum. En í sjálfu sér eru þessar búðir alls ekkert slæmar. (Forseti hringir.) Aðbúnaður er ágætur, húsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur o.s.frv., þannig að eftir (Forseti hringir.) skoðunarferð okkar til Norðurlandanna þá get ég fullyrt að ég sé ekkert slæmt við slíkan aðbúnað.