153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

landamæri.

212. mál
[16:56]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Rauði krossinn á Íslandi biður okkur að hlusta. Þá er ástæða til að hlusta og velta því fyrir okkur hvort við séum að beita lögum sem eiga að tryggja mannúð með þeim hætti sem eðlilegt er. Þess vegna þykir mér afskaplega óheppilegt, svo ekki sé tekið fastar til máls, að allsherjar- og menntamálanefnd virðist ekki hafa greint með nægilega ítarlegum hætti möguleg áhrif þeirra lagabreytinga sem við ræðum hér á fólk á flótta, umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eiga dálítið undir högg að sækja gagnvart þeirri ríkisstjórn sem nú situr. Þau hafa orðið fyrir ítrekuðum tilraunum stjórnarliða til að svipta þau rétti og það sem ber kannski sakleysislegra yfirbragð en frumvarp um útlendinga, þetta frumvarp um landamæri, gæti haft óæskilegar afleiðingar á viðkvæma hópa.

Það eru þrjú atriði sem ég myndi vilja víkja örstutt að, ef mér reiknast rétt til. Í fyrsta lagi er það 8. gr. frumvarpsins, sem ég ræddi í andsvari við hv. þm. Birgir Þórarinsson, sem snýst um skyldu einstaklinga sem koma til landsins að hafa meðferðis gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem er viðurkennt sem ferðaskilríki við komu til landsins, og möguleika lögreglu til að undanþiggja útlending þeirri skyldu í sérstökum tilvikum. Hvaða fólk lendir í þessum aðstæðum? Hvaða fólk mætir á landamærastöð án skilríkja? Væntanlega myndi það koma fram í greiningunni sem ekki liggur fyrir í málinu en ég ætla að giska á að í nánast öllum tilvikum sé um að ræða umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Hér stendur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar fyrir áliti þar sem meiri hlutinn undirstrikar að þessi breyting muni ekki hafa áhrif á möguleika einstaklinga til að óska eftir alþjóðlegri vernd hér á landi. Við skulum vona að það sé rétt hjá þeim en aftur vantar greininguna til að geta staðið föstum fótum á þeirri skoðun. Síðan er einn hópur innan þess mengis sem ég er ekki viss um að meiri hlutinn hafi endilega leitt hugann að. Það eru umsækjendur um alþjóðlega vernd sem koma til landsins eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í öðru ríki eða fólkið sem talað er um í a-lið 36. gr. laga um útlendinga; fólkið sem hefur hlotið vernd á Grikklandi og flýr ónýtt verndarkerfi Grikklands til Íslands. Hvernig myndi svoleiðis einstaklingi verða tekið á landamærastöð ef hann væri án skilríkja? Það vantar útfærslu í lagagreininni sjálfri hvaða sérstöku aðstæður geta heimilað lögreglu að undanþiggja útlending þeirri skyldu að vera með ferðaskilríki á sér. En þröngur lestur á lögunum, sem er eina útfærslan á lestri sem yfirvöldum útlendingamála virðist vera töm, myndi mögulega leiða til þess að einstaklingar í þessari stöðu sem flýja Grikkland til Íslands í leit að mannúðlegra verndarkerfi yrðu túlkaðir sem svo að þeir væru ekki umsækjendur sem þyrfti að taka til efnismeðferðar. 36. gr. segir það. Það er ekki skylda að taka umsækjanda sem kemur til landsins eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í öðru landi og ekki skylda að taka umsókn þess einstaklings til efnismeðferðar. Því gæti lögreglan bara tekið upp það verklag að vísa viðkomandi frá landi beint á landamærastöð.

Þetta setur kannski líka í samhengi þá breytingu sem var gerð á frumvarpi ríkisstjórnarinnar til breytinga á útlendingalögum sem var lagt fram í fimmta sinn í haust. Þar vorum við mörg ánægð með að það hefði verið stigið skref til baka varðandi þennan hóp þannig að sjálfvirk endursending samkvæmt útlendingalögum myndi ekki eiga við hann, eins og þrír hæstv. dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins höfðu lagt til, heldur væri hægt að taka þann hóp til efnismeðferðar. En skyldi þetta landamærafrumvarp kannski vera ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokknum fannst ásættanlegt að leggja frumvarpið fram með þessari breytingu, að breytingin á útlendingafrumvarpinu hafi fengið að fara í gegn hjá ráðherra Sjálfstæðisflokksins vegna þess að þessum hóp verði hvort eð er sjálfkrafa vísað brott við komuna til landsins samkvæmt þessari grein landamærafrumvarpsins eins og hún liggur fyrir?

Ég veit það ekki vegna þess að greiningin liggur ekki fyrir. Það að sú greining liggi ekki fyrir er grafalvarlegt vegna þess að þetta er hópur sem almenningur hefur ítrekað gripið til varna fyrir; hópur sem flýr örbirgð, ofbeldi, hungur og fátækt í meintu verndarkerfi Grikklands til að sækja vernd á Íslandi. Ef frumvarp til laga um landamæri verður til þess að endursenda þennan hóp sjálfkrafa þá held ég að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar mætti hugsa sinn gang og endurskoða afstöðu sína til frumvarpsins. Eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir sagði í sinni ræðu þá hefur hún óskað þess að málið fari aftur til nefndar milli 2. og 3. umr. og gefst þá vonandi tækifæri til þess að rýna þetta ofan í kjölinn. Ef við ætlum að standa með mannúð í útlendingamálum þá getum við ekki leyft okkur að afgreiða mál án þess að þetta sé algjörlega á tæru.

Frú forseti. Ég held að hv. þingmaður, framsögumaður 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, hafi farið ágætlega yfir það óheillaskref sem kveðið er á um í 10. gr. frumvarpsins varðandi sviptingu andmælaréttar. Þetta er náttúrlega allt á sömu bókina lært. Kerfisbundinn vilji stjórnarliða er til þess að draga úr sjálfsögðum mannréttindum útlendinga og sérstaklega fólks á flótta þegar kemur að samskiptum þess við stjórnvöld. Það að einungis séu tiltekin fordæmi úr útlendingalögum sýnir okkur auðvitað hversu slæm staðan er löngu orðin hjá þeim hóp og með þessu frumvarpi er lagt til að gera hana enn verri. Því er auðvitað full ástæða til að rýna það betur eins og hv. framsögumaður 1. minni hluta lagði til.

Síðan langar mig að nefna 15. gr. frumvarpsins sem Rauði krossinn leggst alfarið gegn. Rauði krossinn á Íslandi leggst alfarið gegn ákvæðinu. Rauði krossinn á Íslandi er spar á að leggjast alfarið gegn ákvæðum í frumvörpum, meira að segja í verstu útgáfum útlendingafrumvarps ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur hefur Rauði krossinn alltaf gætt þess að benda á ákvæði sem eru til góðs eða hlutlaus varðandi réttindi fólks og það er ekki nema í allra verstu ákvæðunum sem Rauði krossinn lýsir svo mikilli andstöðu við ákvæði. Í 15. gr. er fjallað um úrræði sem heimilt er að beita til að útlendingur fái ekki inngöngu í landið. Það ákvæði veitir lögreglu heimild til að frelsissvipta m.a., eins og kemur fram í umsögn Rauða krossins, umsækjendur um alþjóðlega vernd, börn jafnt sem fullorðna sem uppfylla ekki komuskilyrði hingað til lands. Meðan fólk er frelsissvipt þá er væntanlega hægt að vinna í málum þess, kanna ferðaskilríki og athuga hvort því verði hleypt lengra inn í landið til að fá einhverja afgreiðslu mála eða hvort eigi að vísa fólki brott.

Hér virðist því vera komið það ákvæði sem hæstv. dómsmálaráðherra talaði fyrir hér í haust um brottvísunarúrræði til að geta gripið fólk strax við komuna til landsins, hneppa það í varðhald og vísa úr landi ef stjórnvöld finna einhvern flöt á því. Hér er gengið talsvert lengra en sá sem hér stendur sér ástæðu til. Eins og Rauði krossinn segir í umsögn sinni þá er ekki gætt að meðalhófi. Þetta er ansi íþyngjandi úrræði og enn og aftur eitthvað sem hefði verið óskandi að allsherjar- og menntamálanefnd legðist í rannsókn á frekar en að taka bara við dómi dómsmálaráðuneytis á umsögnum umsagnaraðila, þar á meðal Rauða krossins, og afskrifa áhyggjur fólks af þessum veigamiklu breytingum.

Aftur er vísað til þess að þegar viðkomandi er í leit að alþjóðlegri vernd þá skuli fara með mál hans samkvæmt reglum þar að lútandi. Þar með gerir meiri hlutinn lítið úr áhyggjum Rauða krossins með því að taka undir þennan úrskurð dómsmálaráðuneytis um umsögnina, en líkt og ég rakti áðan varðandi 8. gr. þá er full ástæða til að hafa enn frekari áhyggjur af því að kerfið muni túlka fólk eftir sínu eigin nefi, fólkið sem raunverulega þarf vernd, eins og hæstv. dómsmálaráðherra kallar það, en þar á hann ekki við fólkið sem er að flýja verndarkerfið á Grikklandi. Því hefði ég áhyggjur af því, væri ég í allsherjar- og menntamálanefnd, að hægt yrði að búa til einhvern undirhóp fólks sem væri full ástæða til að kalla umsækjendur um alþjóðlega vernd en myndi ekki flokkast þannig, vegna þess að þar væri um að ræða fólk sem hefði hlotið alþjóðlega vernd í öðru landi og þar með þætti íslenska kerfinu það ekki geta sótt um alþjóðlega vernd hér.

Forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Þegar Rauði krossinn biður okkur að hlusta og sýna mannúð er ástæða til að gera það og ég vona að hv. allsherjar- og menntamálanefnd muni standa undir því á milli 2. og 3. umr. þegar málið verður tekið aftur til nefndar og umfjöllunar þar.