landamæri.
Virðulegur forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þingmanns. Mér fannst hann vera að tala ansi mikið um málefni flóttamanna varðandi þetta frumvarp til laga um landamæri. Ég get ekki séð annað þegar ég skoða þetta frumvarp en að það gildi um landamærastjórn, landamæravörslu og enn fremur um heimild einstaklinga til að fara yfir innri og ytri landamæri á Schengen-svæðinu við komu til landsins og brottför frá landinu. Um heimild útlendinga til dvalar hér á landi og rétt til alþjóðlegrar verndar gilda ákvæði laga um útlendinga. Ég get ekki séð annað en að þessi umfjöllun um alþjóðlega vernd eigi heima í því frumvarpi sem liggur fyrir allsherjar- og menntamálanefnd og lýtur að breytingu á lögum um útlendinga.
Varðandi 15. gr., úrræði sem heimilt er að beita til að útlendingur fái ekki inngöngu í landið, þá er það svoleiðis að íslensk yfirvöld og stjórnvöld í öllum fullvalda ríkjum ráða því einfaldlega hvaða einstaklingar, sem ekki eru ríkisborgarar, koma til landsins. Ef ég man rétt þá segir í stjórnarskránni að Íslandi beri skylda til að taka á móti öllum íslenskum ríkisborgurum. Þetta eru bara grundvallarreglur sem lúta að fullveldi og ég get ekki séð að 15. gr. takmarki eitthvað ef útlendingur kemur og sækir um alþjóðlega vernd. Þá sækir hann um alþjóðlega vernd á grundvelli laga um útlendinga og það fer í þá málsmeðferð. Ég tel einmitt mikilvægt að stjórnvöld og lögreglan hafi heimild til að meina útlendingi komu til landsins sem ekki uppfyllir skilyrði fyrir henni. Það væri gaman að heyra álit á þessu máli. Þegar ég heyri hv. þingmann tala þá langar mig að spyrja: Vill hann ekki landamæri á Íslandi? (Forseti hringir.) Vill hann ekki innri landamæri, meira að segja á Schengen-svæðinu?