landamæri.
Virðulegur forseti. Ég var með spurningu um það og gat ekki heyrt annað af ræðu hv. þingmanns en að hann vilji hreinlega ekki landamæravörslu við Ísland. Vill hann það eða ekki? Vill hann eða ekki svokölluð „open borders“, að ekki megi ekki stöðva neinn á íslenskum landamærum í Keflavík eða annars staðar í landinu sem hefur ekki fullgild skilríki, uppfyllir ekki skilyrði fyrir komu til landsins? Það var spurningin.
Ég get alveg sagt mína skoðun varðandi þá sem eru búnir að fá alþjóðlega vernd í öðru ríki. Ég tel óþarfi að íslenska ríkið sé að veita því fólki vernd aftur vegna þess að það er komið í skjól fyrir þeim ofsóknum sem það verður fyrir í því landi sem það býr. Ísland þarf því ekki að veita alþjóðlega vernd aftur, svo það liggi fyrir. Það getur hins vegar komið og sótt um dvalarleyfi, því er velkomið að sækja um dvalarleyfi og fá dvöl í landinu. Ég tel óþarfa að íslenska ríkið sé öðru sinni að veita fólki alþjóðlega vernd sem er komið með hana. Það eru 103.000 flóttamenn í Grikklandi. Við berum bara ekki ábyrgð á þeim 103.000 einstaklingum. Við berum ábyrgð á íslensku samfélagi svo langt sem það nær.
Varðandi andmælaréttinn sem við skoðuðum einmitt í nefndinni þá hef ég farið yfir umsögn Rauða krossins og hún nær einungis til þess þegar 13. gr. er beitt, um tímabundið eftirlit á innri landamærum. Það segir í 10. gr. að ákvæði 13. gr. stjórnsýslulaga um andmælarétt gildi ekki. Það er áfrýjunarréttur. Þú getur kært ákvarðanir strax til æðra stjórnvalds og þá þarftu ekki andmælaréttinn. Þannig er það leyst og afgreiðslur verða að vera skjótari. Fólkið er á landamærunum og því verður hin skjóta afgreiðsla að gilda. Hins vegar er hægt að kæra ákvörðunina ef manni er neitað um inngöngu í landið. Þar er réttarverndin.