153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

landamæri.

212. mál
[17:18]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Afstaða mín til landamæra almennt skiptir ekki öllu máli hér heldur er ég að vekja máls á stöðu afmarkaðs, viðkvæms hóps sem ég heyri að hv. þingmaður, sem skrifar einmitt undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar, hefur ekki sömu áhyggjur af og ég. (Gripið fram í.) Hann lítur svo á að vegna þess að fólk sé komið í skjól frá þeim ofsóknum sem það flýr, þá sé óþarfi fyrir Ísland að taka mál þess til efnismeðferðar. Þessu er ég hjartanlega ósammála. Við eigum ofboðslega mörg dæmi um að það sé hreinlega ómannúðlegt að láta fólk búa á haugunum í Grikklandi. Um þetta verðum við bara að vera ósammála og það kemur því ekkert við hvort ég vilji hér opna landamæri eða ekki. Þetta snýst um að ég vil standa með mannúðinni. Af orðum hv. þingmanns þá les ég það svo að meiri hlutinn sé meðvitaður um að þetta geti orðið sjálfvirkt endursendingarkerfi á landamærastöð komi t.d. fólk hingað frá Grikklandi. Það er mikið áhyggjuefni vegna þess að í þeim meiri hluta sem myndaðist í allsherjar- og menntamálanefnd um þetta mál þá er fólk sem hefur gefið sig út fyrir að standa á öðrum stað varðandi þann hóp. Þar eru fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar, og Vinstri grænna sem gumuðu sig af því að hafa náð þessu sjálfvirka endursendingardrasli úr útlendingafrumvarpinu. Það nær náttúrulega ekki nokkurri átt að það dúkki síðan upp í þessu frumvarpi, mögulega undir fölsku flaggi. Ég vona þá að hv. allsherjar- og menntamálanefnd vinni betur úr því milli 2. og 3. umr.