153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

almannatryggingar.

66. mál
[18:05]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er meðflutningsmaður þessa máls og tel hér um mjög mikilvægt mál að ræða. Mig langar að koma í ræðustól og fara aðeins yfir þetta þrátt fyrir mjög góða reifun hjá framsögumanni, hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni. Hér er um ákveðið grundvallarmál að ræða um að fella burtu ákvæðið um heimild Tryggingastofnunar til að afla upplýsinga um tekjur maka umsækjanda eða greiðsluþega samkvæmt lögunum, að fengnu skriflegu samþykki beggja, en ákvæðið skyldar maka til að taka þátt í málsmeðferð. Þetta er mikið réttlætismál og það verður að segjast eins og er að þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona mál hafa komið til umræðu í samfélaginu og fyrir dómstólum meira að segja.

Ég vil benda á að þetta minnti mig mjög mikið á dóm Hæstaréttar frá árinu 2000 í máli nr. 125/2000, bls. 4480, fyrri öryrkjadóminn. Í þeim dómi komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ákvæði 5. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga að því er varðar þá aðferð sem þar var viðhöfð við tengingu örorkubóta við tekjur maka eða sambúðaraðila væri ósamrýmanleg ákvæðum 1. mgr. 76. gr., sbr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Þetta gerir Hæstiréttur m.a. á grundvelli heimildar sinnar til að meta stjórnskipulegt gildi laga. 76. gr. fjallar um það að fólk á rétt á því að fá bætur frá ríkissjóði eða rétt til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis og örbirgðar og sambærilegra atvika. Um það fjallar 76. gr., eins og réttilega er fjallað um í greinargerð. 65. gr. fjallar um jafnræði. Það að einstaklingur sem fær bætur frá almannatryggingum sé háður því að upplýsingagjöf komi frá maka líka og það að hann þurfi að afla upplýsinga hjá maka sínum og bera hallann af því ef maki vanrækir að sinna upplýsingaskyldu sinni er algjörlega óásættanlegt. Af hverju? Jú, af því að einstaklingurinn, makinn sem á rétt á bótunum — þetta er sjálfstæður réttur, hann er ekkert háður hinum makanum hvað það varðar. Þá er mjög mikilvægt að ekki sé verið að skerða þennan rétt með tilliti til þess ef hinn makinn, sem ekki þiggur bætur, fái ekki upplýsingarnar.

Svo er það líka persónuverndarsjónarmið. Ríkisvaldið er að teygja arma sína ansi langt með því að krefjast þess að þeir afli upplýsinga um fjárhagslega hagsmuni maka. Það reyndi á þetta fyrir 22 árum, var mjög umdeildur dómur á sínum tíma, og ef ég man rétt þá kom annar dómur í kjölfarið. Hér er verið að tala um ákveðin félagsleg réttindi. Ég get vísað til þess að í öryrkjamálinu vísar Hæstiréttur m.a. til 26. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, þetta er samningur Sameinuðu þjóðanna, og einnig til 9. gr. alþjóðasamnings um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og lætur þessar þjóðaréttargerðir hafa áhrif á skýringu á ákvæði stjórnarskrárinnar. Þetta eru svokölluð félagsleg réttindi. Það sem ríkisvaldið gerir með almannatryggingalögunum er að tryggja félagsleg réttindi. Það er ákvæðið sem er minnst á, þ.e. í 76. gr. stjórnarskrárinnar um rétt til aðstoðar vegna örorku, sjúkleika, elli, atvinnuleysis og örbirgðar. Enginn á að þurfa að tapa rétti sínum sem hann á samkvæmt stjórnarskránni, 76. gr. Það á ekki þurfa að skerða friðhelgi einkalífsins til að fá þennan rétt uppfylltan, það segir ekkert um það í 76. gr. Þetta er sjálfstæður réttur. Hann er að sjálfsögðu líka tengdur jafnræðisákvæðinu eins og var í öryrkjadómnum. Þannig að þetta eru mjög mikilvæg réttindi og tengjast líka samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, eins og kemur fram í greinargerðinni, að virðing skuli borin fyrir meðfæddri göfgi og sjálfræði einstaklings, þar með talið frelsi til eigin ákvarðanatöku og sjálfstæði.

Það er alveg klárt mál að þetta sýnir enn og aftur mikilvægi þess að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögleiddur á Íslandi. Við verðum að styrkja þessi félagslegu réttindin sem kveðið er á um í 76. gr. Þetta frumvarp er viðleitni til þess að styrkja sjálfstæð réttindi en ekki að það sé háð upplýsingagjöf maka. Ég tel óþarfa að hafa þessi orð fleiri hér en ég vildi bara vísa sérstaklega til þessa dómsmáls sem olli mikilli ólgu í íslensku samfélagi og ekki síst innan fræðaheimsins um heimildir dómstóla til að meta stjórnskipulegt gildi laga.

Ég ætla nú ekki að fara að kveða upp um það hvort þetta sé stjórnarskrárbrot eða ekki en það er klárt mál að það gengur inn á friðhelgi einkalífsins og persónuverndarsjónarmið að krefjast upplýsinga um tekjur maka.