153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

neytendalán o.fl.

67. mál
[18:11]
Horfa

Flm. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um neytendalán, lögum um fasteignalán til neytenda, lögum um ábyrgðarmenn og lögum um neytendasamninga. Frumvarp þetta var áður lagt fram á 152. löggjafarþingi og er nú lagt fram efnislega óbreytt. Meðflutningsmenn eru hv. þingmenn Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

Með frumvarpinu er annars vegar lagt til að skaðabótaskylda vegna brota gegn lögbundnum réttindum neytenda verði hlutlæg til að tryggja að þeir eigi alltaf rétt á að fá bætur fyrir tjón sem þannig verður. Hins vegar er lagt til að í viðeigandi sérlögum á sviði neytendaréttar verði skýrt fram tekið að samningsskilmálar sem brjóti gegn ákvæðum þeirra séu ógildir til að tryggja að neytendur verði ekki bundnir af þeim en viðkomandi samningar skuli þó að öðru leyti standa óbreyttir, ekki síst ef það er til hagsbóta fyrir neytandann.

Markmið frumvarps þessa er að efla réttarvernd neytenda á íslenskum fjármálamarkaði og samræma hana þeim viðmiðum sem hafa mótast í réttarframkvæmd á sviði Evrópuréttar, einkum með hliðsjón af lögskýringargögnum að baki fyrrnefndum lögum, tilskipan Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum, tveimur ráðgefandi álitum EFTA-dómstólsins um þetta efni og margítrekaðri dómaframkvæmd Evrópudómstólsins.

Frumvarpinu er ætlað að skjóta styrkari stoðum undir þær meginreglur að neytendur skuli ekki vera bundnir af óréttmætum skilmálum og ef það veldur þeim tjóni eigi þeir fullan bótarétt. Þar sem þær meginreglur hafa ekki enn komið til nægilega skilvirkrar framkvæmdar hér á landi er nauðsynlegt að kveða á um þessi réttindi neytenda með skýrari hætti en hingað til hefur verið gert. Það gefur augaleið að neytendur bera hvorki sömu ábyrgð né skyldur og atvinnurekendur, hvað þá fjármálafyrirtæki, við gerð samninga, enda er ekki hægt að ætlast til þess að þeir hafi þekkingu til þess, auk þess sem neytendur eiga að geta treyst því að fyrirtæki sem þeir eiga viðskipti við standi rétt að málum. Ábyrgðin er því öll þeim megin.

Ég ætla fyrst að fjalla um hlutlæga bótaskyldu. Til að útskýra þá hlutlægu bótaskyldu sem er fjallað um í frumvarpinu þarf að skoða aðeins grunnreglur skaðabótaréttar. Almennt gildir sú regla að sýna þurfi fram á saknæma háttsemi tjónvalds svo að tjón fáist bætt. Takist ekki að sýna fram á það er tjón jafnvel óbætt og tjónþoli situr einn uppi með skaðann. Það er hætt við að tjónþolar, t.d. í umferðaróhöppum, ættu erfitt með að sætta sig við þennan skilning væri hann lagður til grundvallar þar.

Hlutlæg ábyrgð felur aftur á móti í sér að í vissum tilvikum, yfirleitt í ákveðnum lögum, þarf ekki að sýna fram á saknæma háttsemi heldur á sá sem olli tjóni skilyrðislaust að bæta fyrir það. Ákvæðin um hlutlæga ábyrgð eiga sér fyrirmynd í lögum um skaðsemisábyrgð og lögum um sjúklingatryggingu, svo dæmi séu tekin. Ákvæði um hlutlæga ábyrgð eiga sér þannig fyrirmynd víða og ættu hvergi betur við en í viðskiptum neytenda við seljendur vöru og þjónustu þar sem aðstöðumunur milli aðila er oft gríðarlegur. Núverandi ákvæði laganna um bótaskyldu bæta í raun litlu við það sem annars myndi leiða af almennum reglum skaðabótaréttar en með þessu frumvarpi er reynt að bæta þar um betur.

Tjón er tjón, hvers eðlis sem það er, og hver hugsun tjónvalds var er hann olli tjóninu. Það er því í hæsta máta óeðlilegt að tjónþoli sitji uppi með skaða sem tjónvaldur olli einfaldlega af því að ekki er hægt að sanna saknæma háttsemi, ekki síst ef sérfræðiábyrgð hvílir á tjónvaldi eða augljós aðstöðumunur er á milli aðila eins og öll neytendavernd þarf að gera ráð fyrir. Með því að kveða á um hlutlæga ábyrgð vegna brota gegn lögunum er gengið út frá því að skilyrði bótaréttar um ólögmæta háttsemi séu þá þegar uppfyllt með lögbroti án þess að sýna þurfi fram á saknæma háttsemi að öðru leyti og er þannig stefnt að því að skýra réttarstöðu neytenda svo að þeir eigi auðveldara með að fá tjón sitt bætt.

Nú vík ég að ógildingu ólöglegra samningsskilmála. Ákvæðin um ógilda samninga og samningsskilmála sem brjóta í bága við lögin eiga sér fyrirmynd í samkeppnislögum og í lögum um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Með þeim ákvæðum er lagt til að skýrt verði áréttað að samningar og samningsskilmálar sem brjóta í bága við ákvæði laga á sviði neytendaréttar séu ógildir og að kröfu neytenda skuli samningur gilda áfram án ógildra skilmála. Ákvæðin sækja sér m.a. fyrirmynd í 33. gr. samkeppnislaga og 36. gr. c í lögum um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Síðarnefnda ákvæðið var liður í innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum. Svipuð ákvæði voru í 14. gr. laga um neytendalán, nr. 121/1994, sem giltu einnig um fasteignalán til neytenda frá 11. janúar 2001 þar sem kom fram að óheimilt væri að innheimta lánskostnað sem ekki hefði verið upplýst um við lántöku í samræmi við ákvæði laganna.

Ekkert slíkt ákvæði er hins vegar í núgildandi lögum um lán til neytenda en að fenginni reynslu er ríkt tilefni til að árétta reglur um ógilda skilmála, sérstaklega í þeim lögum. Einnig er tekið fram í ákvæðunum að samningur skuli að kröfu neytanda gilda að öðru leyti án breytinga, verði hann á annað borð efndur án ógildra skilmála. Þessi áskilnaður er sá sami og í samningalögum, nr. 7/1936, með breytingum skv. lögum nr. 14/1995 sem voru gerðar í tengslum við innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum. Að fenginni reynslu er ríkt tilefni til að árétta að þetta eigi einnig við samninga um neytendalán. Það styðst einnig við niðurstöður EFTA-dómstólsins þar sem segir, með leyfi forseta:

„1. mgr. 6. gr. tilskipunar 93/13/EBE verður að túlka með þeim hætti að í þeim tilvikum þar sem landsdómstóll kemst að þeirri niðurstöðu að tiltekinn samningsskilmáli sé óréttmætur samkvæmt tilskipuninni beri þeim dómstól að tryggja að slíkur skilmáli sé óskuldbindandi fyrir neytandann að því gefnu að samningurinn geti haldið gildi sínu að öðru leyti án hins óréttmæta skilmála að því marki sem reglur landsréttar leyfa.“

Enn fremur má vísa til dóms Evrópudómstólsins, t.d. í máli C-618/10 o.fl., þar sem komist var að eftirfarandi niðurstöðu, með leyfi forseta:

„Túlka ber 1. mgr. 6. gr. tilskipunar 93/13/EBE þannig að hún útiloki lagasetningu aðildarríkis sem heimilar innlendum dómstól, ef hann kemst að þeirri niðurstöðu að ósanngjarn skilmáli í samningi milli seljanda eða veitanda og neytanda sé ógildur, að breyta þeim samningi með því að endurskoða efni skilmálans.“

Til að sleppa því að lesa þarna aukasetningu þá stendur að hún útiloki lagasetningu aðildarríkis sem heimilar innlendum dómstól að breyta þeim samningi með því að endurskoða efni skilmálans. Eins og fyrr segir voru ákvæði 14. gr. laga um neytendalán frá 1994 þar sem kom fram að óheimilt væri að innheimta lánskostnað sem ekki hefði verið upplýst um við lántöku í samræmi við ákvæði laganna og ekki hærri kostnað en kemur fram í lánssamningi.

Í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um neytendalán, nr. 33/2013, sem felldu brott eldri lög um neytendalán, nr. 121/1994, kemur fram að nefndin sem stóð að baki samningu frumvarpsins hafi ekki talið þörf á að taka sambærileg ákvæði upp í frumvarpið þar sem reglan væri hluti af gildandi rétti og birtist í 3. gr. laga um vexti og verðtryggingu. Raunin hefur sýnt að það er full ástæða til að kveða skýrar á um þennan rétt neytenda því dæmin sýna að hann er alls ekki nógu skýr í gildandi löggjöf.

Ítrekuð dómaframkvæmd um vanrækslu og skyldur lánveitanda samkvæmt hinum eldri lögum hefur yfirleitt ekki haft neinar afleiðingar fyrir hina brotlegu lánveitendur. Neytandinn hefur bara setið uppi með skaðann. Það hefur svo leitt til þess í seinni tíð þegar reynt hefur á lögmæti skilmála samkvæmt núgildandi lögum að lánveitendur hafa jafnvel borið það fyrir sig að lögin hafi ekki að geyma nein ákvæði um beinar afleiðingar af brotum gegn þeim þrátt fyrir að í fyrrnefndu áliti efnahags- og viðskiptanefndar sé gert ráð fyrir að um gildandi rétt sé að ræða.

Það gefur því augaleið að það er nauðsynlegt að taka af allan vafa um gildandi rétt í slíkum tilvikum með því að kveða skýrt á um hann í lögum til að tryggja neytendum hér á landi betur þann rétt sem leiðir af hlutaðeigandi EES-reglum, enda væri það í samræmi við vilja löggjafans eins og hann kom fram í áliti efnahags- og viðskiptanefndar á sínum tíma.

Með lögum um fasteignalán til neytenda sem tóku gildi 1. apríl 2017 voru lán sem almennt eru kölluðu húsnæðislán felld undan gildissviði laga um neytendalán og færð undir hin nýju sérlög um fasteignalán til neytenda með sama hætti og á við um önnur lán til neytenda. Með frumvarpinu er lagt til að sambærileg ákvæði verði færð í þau lög um afleiðingar af brotum gegn þeim. Jafnframt er í frumvarpinu lagt til að hliðstæðar breytingar verði gerðar á lögum um ábyrgðarmenn þannig að skýrt verði tekið fram að bótaskylda sé hlutlæg og ábyrgðarsamningar sem brjóti gegn ákvæðum laganna séu ógildir. Til samræmis við þessar tillögur er einnig lagt til í frumvarpinu að sambærileg ákvæði verði færð í lög um neytendasamninga en þau ná yfir ýmsar tegundir samninga, þar á meðal fjarsölusamninga.

Eins og áður sagði er markmið frumvarpsins að efla réttarvernd neytenda á íslenskum fjármálamarkaði og samræma hana þeim viðmiðum sem hafa mótast í réttarframkvæmd á sviði Evrópuréttar, einkum með hliðsjón af lögskýringargögnum að baki fyrrnefndum lögum ásamt dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins og Evrópudómstólsins.

Frumvarpinu er ætlað að skjóta styrkari stoðum undir þá meginreglu að neytendur skuli ekki vera bundnir af óréttmætum skilmálum og verði þeir fyrir tjóni skuli það jafnan bætt að fullu. Þar sem sú meginregla hefur ekki enn komið til nægilega skilvirkrar framkvæmdar hér á landi er nauðsynlegt að kveða á um þessi réttindi neytenda með skýrari hætti en hingað til.