153. löggjafarþing — 37. fundur, 24. nóv. 2022.
eftirlitsheimildir þingnefnda.
Forseti hefur áður lýst þeirri afstöðu sinni að þegar þingnefndir kalli ráðherra til samtals á grundvelli eftirlitsheimilda nefnda þá miðist það við þá ráðherra sem hafa stjórnskipulega ábyrgð á viðkomandi málaflokkum. Sá úrskurður sem hv. þingmaður vísar til og nýlegt minnisblað nefndasviðs Alþingis eru í báðum tilvikum á þá vegu.