153. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2022.

landamæri.

212. mál
[10:34]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þrátt fyrir nokkuð afdráttarlausa gagnrýni í umsögn Rauða kross Íslands hafa ekki verið gerðar þær breytingar á þessu frumvarpi sem í við þingflokki Pírata teljum nauðsynlegar. Hér í umræðu bentum við á að mögulega væri verið að skerða möguleika hluta flóttafólks til að komast til landsins á landamærastöð, andmælaréttur væri tekinn af fólki þegar til stæði að brottvísa því frá landinu og að mögulega verið væri að opna á lagaheimild fyrir brottvísunarbúðir. Allt er þetta gert án þess að greining liggi fyrir. Allt er þetta gert án þess að allsherjar- og menntamálanefnd hafi tekið sjálfstæða afstöðu til þessara álitaefna. Fulltrúi Pírata í allsherjar- og menntamálanefnd hefur farið fram á að málið gangi til nefndar milli 2. og 3. umr. og við vonum að það taki jákvæðum breytingum við þá umfjöllun, en í ljósi þess að málið er ekki nógu gott eins og það er, þótt við vonumst til að það batni þegar fram líða stundir, munum við sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.