hækkun stýrivaxta.
Forseti. Hæstv. forsætisráðherra talar um mikilvægi þess að ræða stóru myndina og það erum við að gera hér í þessu samhengi. Gjaldmiðillinn er hluti af stóru myndinni, tvímælalaust, og um hann er mjög lítið rætt. Það hefur verið rætt um það áratugum saman að styrkja þessi tæki sem hæstv. forsætisráðherra vísar til. Staðan er eftir sem áður alltaf sú, og hefur verið lengi, að við búum við þetta vaxtastig sem er bein afleiðing af því hver gjaldmiðillinn okkar er. Ég sakna þess að heyra ekki svar hæstv. forsætisráðherra við því hvers vegna það þurfi þrefalt hærri stýrivexti á Íslandi í þeirri stöðu að við erum að vinna gegn næstlægstu verðbólgu í Evrópu. Það segir ótrúlega mikla sögu.
Ég vil líka nefna að ríkisstjórnin ber mikla ábyrgð á því að halda verðbólgunni í skefjum með aðhaldi í ríkisrekstrinum, með því að vera ekki í þensluhvetjandi aðgerðum. Á þetta hefur Seðlabankinn bent. Á þetta hafa Samtök atvinnulífsins bent. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin verður að axla sinn hlut í þessu máli. Eitt sterkasta framlag hæstv. forsætisráðherra núna gagnvart kjarasamningunum (Forseti hringir.) væri að stýra ríkisfjármálunum með þeim hætti að markmið um að ná tökum á verðbólgunni geti náðst fram.