veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé afar mikilvægt að þessir fjármunir séu nýttir vel eins og aðrir fjármunir sem ganga í ríkissjóð. Eins og hv. þingmaður veit þá háttar þannig til, í samræmi við lög um opinber fjármál, að við mörkum ekki tekjur til tiltekinna verkefna lengur. Það var auðvitað gert í miklum mæli hér áður fyrr. Ég held því að við eigum öll bara fyrst og fremst að fagna því að þarna erum við að koma í veg fyrir að þessir 2,5 milljarðar skili sér ekki á árinu 2023. Ég treysti því að þeim verði ráðstafað til góðra verka eins og öðrum fjármunum ríkisins.