veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og jú, ég geri mér alveg grein fyrir því. En þetta eru nú bara 2,5 milljarðar inn í ríkissjóð á næsta ári, 2,5 milljarðar sem hægt er að ráðstafa, það er hægt að taka út þá peninga sem á þarf að halda. Það er yfirleitt talað um það hér að ekki sé hægt að standa vel að málum og hækka þá verst settu vegna þess að það vanti fjármuni. Staðreyndin er sú að þarna erum við með 2 til 2,5 milljarða og svo erum með 4 milljarða í sparnað vegna fækkunar einstaklinga á örorku — ég er nú ekki alveg búinn að átta mig á því hvernig það er fengið út. En það eru til peningar og ég spyr hvort hæstv. ráðherra sé ekki sammála mér um að hægt væri að nota þá peninga sem við erum að tala um þarna í góð mál. Þörfin er svo sannarlega til staðar þarna úti og ég held að hæstv. ráðherra hljóti að vera innilega sammála mér í því.