veiðigjald.
Virðulegi forseti. Já, það er hægt og ég tel mikilvægt að horfa til allra þeirra þátta í fjárlögunum sem geta orðið til þess að jafna kjör í landinu, auka réttlæti. Þar held ég að við hv. þingmaður séum sammála. Við höfum stundum tekist á en oftar en ekki höfum við þó kinkað kolli þegar hitt er að halda ræður og ég ætla bara að halda því áfram. En væntanlega mun koma til þessarar umræðu við afgreiðslu fjárlaga, með hvaða hætti fjármunum ríkisins er ráðstafað. Þegar við erum að ákveða útgjaldahluta fjárlaganna mun þetta allt saman verða rætt.